fimmtudagur, apríl 02, 2009

Sjáðu stóra typpið mitt

Typpaþráhyggja karlmanna er eitthvað sem mörgum þykir ansi furðulegt fenómen.

Það er með ólíkindum hvað margir geta verið upptekinir af stærðinni en þetta sýnir sig og sannar t.d. á öllum þessu "increase your penis size" póstum sem streyma í hólf heimsins.
Konur eru hinsvegar talsvert minna uppteknar af þessu en karlar.

"It's not the size of the ship but the motion of the ocean". Þetta virðumst við vita. Öfugt við strákana.

Ég hef löngum furðað mig á þessum undarlega kúltúr en vinur minn sagði mér svolítið um daginn sem sló flestar typpasögur út. Hann sagði mér að hnakkarnir í ræktinni, þessir brúnu sem dýrka útlitið ofar öllu öðru, eigi það til að dangla svolítið duglega í spenann á sér áður en haldið er í sturtuklefann. Svona til að hann virki aðeins stærri.

WHDF?!?!

TIL HVERS? Hvernig í ósköpunum getur það skipt máli að einhverjum karli í sturtu finnist getnaðarlimur bláókunnugs manns stór, eða lítill, eða miðlungs, eða whatever? Ég meina... döh?

Skrítna kyn. Skrítna furðulega keppnis kyn sem keppir líka í því sem er ekki hægt að keppa í.

Fyrir utan þetta þá þætti þeim kannski fróðlegt að heyra hvað Kama Sutra segir um stóra limi.

Menn með stóra limi eiga að finna sér konur með stór kynfæri. Öðruvísi fá þeir ekki eins mikið út úr samlífinu... og ekki konurnar heldur. Tröllkarlar eiga að vera með skessum.

Þannig að wannabe tröllkarla hnakkinn í sturtunni ætti beisikklí að finna sér eina væna skessu að leika sér við  - ef hann er virkilega að meina eitthvað með þessu.


Maðurinn hér til hægri er augljóslega ekki hnakki. Honum er slétt sama.

miðvikudagur, apríl 01, 2009

The Blame Game

Jæja, ég var að horfa á Gobba og Obba halda ræður í tilefni af alþjóðlegum leiðtogafundi sem fer nú fram í London. Blaðamaður í krádinu spurði Gordon af hverju hann hefði kennt Bandaríkjastjórn um kreppuna.

Gordon varð vandræðalegur og sagði að þegar hann hafi verið í verkalýðsflokki hafi hann kennt ríkisstjórninni um "...en þegar maður fer svo í ríkisstjórn þá kennir maður öðrum löndum um." Svo brosti hann til Obama sem sagði að vissulega þyrftu kanar líka að líta í eigin barm og taka allt til gagngerrar endurskoðunar, eða gera "inventory" eins og hann orðaði það. Hann benti á að á meðan bankakerfið þandist upp og dreifði sér þvers og kruss um heiminn hafi eftirlit með því brugðist. Áhrifin eins og dómínóspil. En hvað "sökudólginn" varðar sagði þessi fallegi nýi Bandaríkjaforseti orðrétt:

"I'm less interested in identifying blame than fixing the problem."

...og undir þessi orð hans tek ég heilshugar. Vona að þú gerir það líka.

Við erum ekkert að fara að leysa þessa kreppu með því að láta eins og smákrakkar og reyna að klína öllu á hann Davíð litla Oddsson og félaga. Hún lagast ef fólk tekur höndum saman og ef hver og einn leggur sitt af mörkum til að hjálpa þeim sem eru hjálpar þurfi, ef hver og einn gerir það sem hann eða hún getur gert til að minnka skaðann.

Og það er ótal margt hægt að gera. 

Allt telur. Byrjaðu að hugsa núna um hvað þú, upp á eigin spýtur, getur gert.


þriðjudagur, mars 31, 2009

Þetta er ÞÉR að kenna!

Nú er mikið galað um það í kringum mig að kreppan á Íslandi sé Sjálfstæðisflokknum að kenna. Af því við kusum hann flest í átján ár og hann "kom okkur í þessa klípu".

Og þá hata allir Sjálfstæðisflokkinn og líka Davíð, sem var þó mest áberandi af öllum í því að reyna að sporna við hringamyndunum og öðru. Skotskífan fest á hann og síðan hefur verið dritað daginn út og inn með ótrúlegum tilþrifum. Á landsfundi xd liðsins talaði karlinn sem var rekinn úr vinnunni og sagði allt sem hann lagaði til að segja. A la... "Fuck you all, I can say what I want". Ég sá allavega ekki betur. Bitur, leiður og reiður. Og hver myndi ekki vera það í hans sporum?

Ég hef aldrei verið mikið fyrir það að skella skuldum á einn eða neinn og mér hefur alltaf þótt það lélegur og barnalegur leikur að æpa "þetta er þér að kenna!" vegna þess að með því er fólk að firra sig ábyrgð á eigin vali. Við erum okkar eigin gæfusmiðir og hljótum meðvitað, eða ómeðvitað, að koma okkur í þá vinnu, það hjónaband, þann vinskap eða það þjóðfélag sem við finnum okkur í.

Sjálfstæðisflokknum var árum saman treyst til þess að byggja hér upp gott þjóðfélag og hann var kosinn sí ofan í æ vegna þess að árangurinn af því sem hann gerði virtist sanna sig í því að hér hafði fólk vanalega bara áhyggjur af þyngdinni og að hafa þurft að sitja of lengi á koppnum í æsku. Semsagt, ekki stór áhyggjuefni í tuttugu ár.

En núna virðast allir hata xd og sörfa á vinstriöldunni af lífi og sál.

Í ljósi þess að það er ekki bara kreppa á Íslandi heldur í öllum heiminum leikur mér forvitni á að vita hver staðan er á þeim löndum þar sem fram að kreppu var ríkjandi vinstristjórn. Þá er ég ekki að tala um Kúbu heldur Evrópulöndin. Ég er ekkert sérfróð um alþjóðastjórnmál en ef þú lesandi góður ert það... þá máttu gjarna upplýsa mig um þetta mál.

Mér finnst bara svo erfitt að skrifa alla sektina á einn flokk, sem var þó árum saman kosinn aftur og aftur. Með þessu er ég ekki að gefa út neinar yfirlýsingar um það í hvaða átt ég halla mér í mínum persónulegu skoðunum. Ég er bara að pæla:

Er klípan sem við finnum okkur í virkilega bara einum flokki "að kenna"... og hvernig er kreppan hjá vinstristjórnum heimsins?


Hér er mynd af Magnúsi Guðmundssyni sjálfstæðismanni . Hann mun vera meðal þeirra örfáu íslensku ráðherra sem hafa sagt af sér. Hann var, sem dómsmálaráðherra, dæmdur í fangelsi af manni sem var bæði lögreglustjóri og æðsti dómari og meðan málið var til meðferðar hjá hæstarétti sagði Magnús af sér. Síðar var hann sýknaður af öllum ákærum. 

Hver er sekur og hver saklaus?

Jesús og kynlífið

Nýverið hef ég hvatt tvær konur til að fjarlægja jesúkrossa úr svefnherbergjum sínum.

Í öðru tilvikinu var Jesúinn stór og útskorinn þannig að ekkert fór á milli mála hvað manninum leið illa, hangandi svona hálfnakinn og búinn-áðí-fyrirsyndirmannanna beint yfir andliti þess sem lá í bólinu.

Í hinu tilfellinu hékk hann greyið yfir svefnherbergisdyrunum. Yfir rúminu hékk svo fremur væmin mynd af síðustu kvöldmáltíðinni.

Svona gripir eiga akkúrat ekkert erindi inn í svefherbergi fólks... hvað þá hjónaherbergi!

Þjakaður og uppþornaður maður á krossi er mjög langt frá því að vera kynæsandi og hvað á fólk að vera að velta syndum sínum fyrir sér þegar það fer upp í rúm? Það kallar bara á andvökur og vesen.

Hann Jesú okkar má gjarna vera með, en bara ekki þar sem fólk vill fara í sleik eða sofa vel.

Þá á hann að vera úti.

mánudagur, mars 30, 2009

Teknó fyrir 4 ára

Með því skemmtilegasta sem ég gerði í síðustu viku var að leyfa fjögurra ára dóttur minni og jafngömlum frænda hennar að hlusta á lagið Dark and long með Underworld í heyrnartólum af bestu sort.

Þau fíluðu lagið vægast sagt vel. Stóðu þarna undir tölvuborðinu, komust í stuð, byrjuðu að dilla sér og skiptust svo á að hlusta meðan þau dönsuðu með stóru græjuna á litlu höfðunum. Vú hú. Dúó-reif í heimahúsi!

21 aldar-ungar eru nefninlega vel undirbúnir fyrir teknó. Þau eru með það í erfðaminninu. Það eru rúm þrjátíu ár síðan Kraftverk fóru á kreik.

Sjálfri er mér lífsins ómögulegt að fá nóg af Underworld og plötunni Dubnobasswithmyheadman. Hef t.d. enn ekki fundið betri tónlist til að taka með í ræktina.

Það er bezt að hlusta á þetta í almenninlegum tólum... og dilla sér.

Íslensk hetjumynd

Minn kæri frændi og uppeldisbróðir Sigurgeir Orri var að ljúka við að gera heimildarmynd um Alfreð Elíasson og Loftleiðir.

Hann Orri er mikill athafnabókaormur og framkvæmir yfirleitt alltaf það sem honum dettur í hug. Stundum hefur hann framkvæmt mjög furðulega hluti, stundum höfum við frændsystkin framkvæmt furðulega hluti... en þessi mynd er samt ekkert furðuleg. Bara fín.

"Hæ fræ, eigum við að koma í kaffi?"
"Nei, ég hef ekki tíma núna. Ég er að keyra út í Hafnarfjörð að ná í átta millimetra litmyndir sem einhver hjá Loftleiðum tók árið 65".
"Ok, seinna þá..."
"Já, endilega"

En núna er myndin tilbúin og mér finnst eins og það hafi gerst á hárréttum tíma. Ekki það að ég hafi verið að biðja um kreppu... en myndin segir sögu af mönnum sem létu ekkert stöðva sig þó móti blési. Hvort sem um var að ræða  spillta stjórnmálamenn, gjaldeyrishöft eða kreppu þá keyptu þeir sínar flugvélar og fóru sínar leiðir með góðum  árangri... (eða þangað til minkarnir komust að með charlatan plottin sín ).

Okkur veitir ekkert af því að sjá svona sögu nú í dag þegar margir eru með skeifu niður á hné af svartsýni.

Hér er treiler úr myndinni. Mér skilst að hún verði sýnd á novelty sýningum í bíó í maí og síðar í sjónvarpinu.

sunnudagur, mars 29, 2009

Love letters

Þetta lag heyrði ég fyrst þegar ég fór á Blue Velvet í Nýja bíó og hefur það verið í miklu uppáhaldi hjá mér æ síðan. Í nútímanum gæti lagið heitið: Text messages... straight from your heart. En það hljómar kannski ekki eins vel...

Ketty Lester er falleg sjálf, eins og lagið og röddin.

Auður og lífeyririnn minn

Ég ætla að færa allann lífeyrissparnaðinn minn til Auðar Capital. 

Ég og vímurnar mínar

Svona til að við séum með þetta allt á hreinu þá vil ég koma því á framfæri, vons end for oll, að ég er bindindismanneskja eins og Ómar Ragnarsson. Ég hvorki reyki gras né drekk áfengi. Hef unnið fyrir góðtemplarana í IOGT (dásamlegt fólk) og lesið mikið um áfengismál og annað því tengt. M.a. farið á nokkuð marga internasjónal fyrirlestra um þessi mál.
Kannski er það vegna þessa sem ég sé lítinn mun á vímuefnunum?
Þetta er í raun allt sama djókið fyrir mér. Efni sem ræna fólk rænunni.
Ef ég er gúggluð ætti að koma upp grein sem ég skrifaði í moggann fyrir mörgum, mörgum árum um áfengissölu í matvöruverslunum. Er enn á sömu skoðun.

Fyrir utan sjálfstæða vinnu við ritstjórn og blaðamennsku hef ég undanfarið ár starfað við kynningarmál fyrir íþróttahreyfinguna í Reykjavík. Svo stunda ég líkamsrækt 4-6 sinnum í viku. Gæti ekki án þess verið. Það er víma.

Eftirlætis vímurnar mínar eru ástar, endorfín, tónlistar- og dansvíma. Svo finnst mér gaman að keyra góða bíla  og hlusta á tónlist. Fer í smá trans af því. Lexus er t.d. mjög góð víma. Og að fara í útreiðartúra. Er að spá í að fara á golfnámskeið í sumar til að geta bondað meira við fjölskylduna mína. Það gæti orðið víma (altso golfið...ekki bondið).

Þar hefurðu það.

laugardagur, mars 28, 2009

Gelgjur

Eruð þið, kæru lesendur, til í að hætta þessum barnalega Liverpool vs. Man U fíflagangi í sambandi við stjórnmálin og flokkana á kommentakerfinu mínu?

Þetta er á svo lágu plani að mig langar helst að heilsa upp á postulínið. Hér eru að koma svo ignorant komment að manni er skapi næst að halda að það séu krúnurakaðir ofsatrúar nýnasistar á lyklaborðinu en ekki menntaðir íslendingar úr misfínum úthverfum.

Hvað er málið með þessi trúarbrögð? Hvernig í ósköpunum getur einhver einn fokking flokkur verið handhafi sannleikans og aðrir flokkar gersamlega úti að...?

Eigum við kannski að hanna búninga á fylgismenn fjórflokkanna? Bláa fyrir Sjálfstæðismenn, Rauða á Samfylkinguna, Græna á hippana og mintu græna á Framsókn. Axlabönd og stígvél? Sixpensara? Stuttbuxur? Usss.... og svo fight club á Klambratúni á Laugardögum?

Hrynur heimurinn ef maður hangir ekki pikkfastur innan ofsatrúar á einhvern flokk, hvort sem hann er hægri, vinstri, undan, ofan eða á ská? Erum við að spila fótbolta eða hugsa um velferð þjóðar?

Er ekki í lagi?

Væri Gunnar í Krossinum kannski góður forsprakki stjórnmálaafls? Ég er ekki frá því.

Af broshýrum reyr

Kannabisræktun er landabrugg 21 aldarinnar.

Ríkið hefur lögleitt vímuefnið áfengi og situr eitt að sölu þess og dreifingu. Hvers vegna ekki kannabis líka?

Þau sem til þekkja, hafa búið utan eyjunnar og kalla ekki allt ömmu sína (t.d. Clinton og Obama) vita að kannabis er ekki hættulegra en áfengi. Í raun er það talsvert skaðlausara.

Það eru ekki margir sem fá sér jónu og fara út að nauðga og berja. Nei. Fólk fær sér jónu, sekkur ofan í sófa með snakkpoka og hlustar á Pink Floyd, fer í sleik eða horfir á Twin Peaks.

Þetta tal um að kannabis sé intró í sterkari efni er líka bullshit sem á ekki við nein rök að styðjast. ÁFENGI er intróið að sterkari efnum. Þannig er það bara og ekki reyna að halda öðru fram.

Meira hvað veðrið er óákveðið.

Mikið var hann Davíð hress á fundinum áðan. Gott að hann hafi núna tíma til að skrifa bækur.

Mig dreymdi ungling sem spilaði magnað tónverk á búsáhöld í boði Hugmyndaráðuneytisins í gær.

Ég ætla að fá mér sushi í kvöld. Ekki jónu. Okbæ!

***


Í bláum skugga, af broshýrum reyr.
Við eigum pípu, kannski' eilítið meir.
Við eigum von og allt sem dæmt og deyr.

Við áttum kaggann, þúfur og þras.
Og kannski dreitil í tímans glas.
En hvað er það, á við gott lyfjagras?

Og þegar vorið kemur á kreik.
Þá tek ég flugið, og fæ mér reyk.
Hann er mín trú, og festa í lífsins sleik.

...og ekkert rugl!

Ríki sitt
skyli ráðsnotra hver
í hófi hafa.
Þá hann það finnur
er með fræknum kemur
að engi er einna hvatastur.

XO

föstudagur, mars 27, 2009

Finnurðu muninn? XO

Það er þetta með Vilmundarflokkinn eða Borgarahreyfinguna.

Ég veit að ég er ekki að fara að leysa heimskreppuna með því að kjósa Vinstri græn eða Sjálfstæðisflokkinn eða Samfylkinguna í næstu kosningum.
Ég er heldur ekki að fara að leysa kreppuna á Íslandi.
Með því að gefa þeim atkvæði mitt er ég eina ferðina enn að kjósa FLOKK sem er bara flokkur með öllu því fokki sem flokkum fylgja. Mannlegum brestum á borð við valdagræðgi, tækifærismennsku, eigin hagsmunapoti og fleiru...

Þegar kreppan skall á flaut spillingarkúkurinn upp á yfirborðið í íslensku samfélagi. Þá sáu allt í einu allir eitthvað sem við Vilmundur (og nokkrir fleiri) höfðum séð lengi (blessuð sé minning hans).

Ég var alveg æpandi mig hása í mörg ár yfir vitleysunni, bæði hér á blogginu og annarsstaðar, yfir tengslum og samráði og fleiru en leið eins og ég væri alltaf ein að æpa. Það er glatað að vera einn að æpa. Það er glatað að vera barnið og horfa á keisarann koma þrammandi berrassaðan niður Laugaveginn.

Núna sjá þetta hinsvegar allir. Af því við brunuðum með keisaranum á vegg á 140 km pr hr og nefbrotnuðum. Fengum hellu fyrir eyrun. Brotna framtönn. BAMM -Kreppa!

Og rumskið varð svo hrikalegt að núna sýnist mér fólk hálf hysterískt af tenglsa-vensla-klíku-hagsmuna-plotts paranoiu. Eiginlega er þetta komið út í öfga sýnist mér... en allavega... aftur...

Ég er ekki að fara að kjósa burtu heimskreppu með því að gefa einum af flokkunum fjórum atkvæði mitt en ég GET HINSVEGAR kosið burtu sér íslenskt kjaftæði (eða sikileyskt) með því að gefa Borgarahreyfingunni atkvæði mitt.

Þau vilja m.a. ráðherrar hætti að leika sér í "musical chairs" þegar það kemur að ráherrastólum. S.s. að þeir hafi ekki leyfi til að stökkva á milli stóla og geti þannig verið við völd svo áratugum skiptir. Þau vilja leyfa okkur að kjósa fólk en ekki flokka, aðskilja löggjöf og framkvæmd og margt fleira sniðugt. 

Og þegar markmiðum hreyfingarinnar hefur verið náð mun hún lögð niður.

Ef við kjósum áfram flokkana þá finnum við engan mun. Þá verður þetta enn sama hagsmunapotsúpan. Sama ruglið.

Ef við kjósum Borgarahreyfinguna þá erum við að kjósa nýtt kerfi sem hentar betur þessari litlu, agnarsmáu þjóð sem er líkari ættbálki en nokkru öðru. Þá kjósum við burtu það sem nýtist okkur ekki lengur - hrossakaup og frímúrarasamninga.

Kjósum nýtt og betra lýðræði fyrir börnin okkar. Heilbrigðari starfshætti. Heilbrigðari þjóðarsál á 21 öld. Borgarahreyfinguna.

fimmtudagur, mars 26, 2009

X- "Vilmundur Gylfason"

Líkt og Þráinn Berthelsson  hef ég gert upp hug minn og ætla að exa við planið hans Vilmundar Gylfasonar  .

X-O

Borgarahreyfingin er flokkur sem hefur það markmið eitt að uppræta spillingu með því að setja pólitíkinni skynsamlegar reglur og skorður. Þegar það er komið ætlar hann að trítla út úr þinghúsinu. Öll önnur ex eru kjaftæði eins og leikar standa í dag.

Með þessari yfirlýsingu vonast ég líka til að uppræta slúðursagnir þess efnis að ég sé gift ónafngreindum sjálfstæðisnagla og sé málpípa hans.

Það sem fólki dettur í hug!

mánudagur, mars 23, 2009

Svartsýni eykur á kreppuna

Já! Auðvitað er ég ekki ein um þessa útreikninga. Vinkona mín sendi mér hérna grein af BBC um þetta leiðinda þunglyndisvæl og þar mælir höfundurinn sem frá mínu hjarta.

Sir David Tang, öntröpönör.

Fyrirsögn greinarinnar, Optimism is the cure for the downturn, er einmitt það sem ég hef verið að reyna að segja undanfarnar vikur.

Það virðist bara ekki mikið um sperrt eyru. Landinn er nefinlega kominn í þetta svíng sem hann fer svo oft í. Þú veist... þegar einhver sjúkdómur kemst í umræðuna og skyndilega eru ALLIR með hann.

Nú er það kreppuþunglyndið. Og vinir mínir í viðskiptum virðast margir hafa smitast og misst tötsið líka. Sjá bara svartnættið en gleyma þessu sem hann Sir David Tang mælir svo skynsamlega:

Before now, there were far too many people out there trying to profit from the shuffling of papers and commodities and derivatives and options and hedging: really sophisticated instruments - but all too clever by half.
It just goes to show that having all these smart theories and ingenious ideas is no substitute for a solid business sense based on the fundamentals of supply and demand, with particular reference to the efficiency of the workforce; all those basic components that people such as Warren Buffett emphasise and are often ridiculed for.
Let this depressing climate also be a reminder that if you grow big, you can collapse big. The higher you climb the harder you fall.

Hann segir líka margt fleira skynsamlegt. Til dæmis þetta:
In particular, governments must immediately instigate infrastructure projects to increase employment, and they must force banks, particularly those that they have rescued, to lend to small businesses.
og þetta:


It is only with a sense of optimism, preferably accompanied by a sense of energy and laughter, that we will be able to pick ourselves up from a broken Humpty Dumpty.


... og lestu svo bara þennan pistil, breyttu viðhorfum þínum og hættu að grenja. Hann er hér í heild sinni. Ekki langur.

Sexy time?

Mikið hrikalega er ég orðin þreytt á að hlusta á fólk stynja, dæsa og tala um "ástandið í þjóðfélaginu".
Eins og það sé einhver samantekt í gangi um að koma okkur öllum í Kaurismäki gírinn?

"Verum sjúklega alvarleg, brosum ekki og tölum fram og aftur um ástandið í þjóðfélaginu -jafnvel þó útvarpið spili stuðlag. Jafnvel þó framtíðin sé ekki að fara neitt... tölum um kreppu og "á hausinn" og samdrátt og niðurskurð og atvinnuleysi og forðumst alla bjartsýni, já forðumst allt stuð."

Höfum þetta bara svona: Tveir finnskir þunglyndissjúkingar með flösu og gyllinæð að hætta saman. Mmmmm... krassandi. Spennandi, æsandi, hvetjandi.

Nei.

Næsta manneskja sem lætur orðin "ástandið í þjóðfélaginu" út úr sér í minni áheyrn mun bitch-slöppuð verða. Þrisvar. Hratt.


Búin

Það er fátt skemmtilegra en að ljúka verki sem hefur verið lengi í vinnslu. Í dag sendi ég frá mér áttatíu blaðsíðna rit til Ísafoldarprentsmiðju. Mér finnst ég svona eitthvað hálf búin á því eftir þetta.

Svo gerist eitthvað nýtt.

Alltaf gaman að því.

Allt fyrir ástina

...fallegur, fallegt.

sunnudagur, mars 22, 2009

Sunnudagsbíltúr

Persónulega fréttabréfið

Sunnudagsbíltúrinn minn var hreinlega magnaður.

Við Ágú fórum í "tuskó" í Hveragerði, öðru nafni Álnavörubúðin. Þar er að finna hina og þessa gripi, sitt lítið af hverju frá þessari og síðustu öld. Mér skilst að það sé einhver lager með vörum síðan fyrir svona 30 árum síðan og enn er verið að selja af þessum lager, allskonar dót. T.d. mjög jólalegar spandex buxur, flókainniskó, neon grifflur, lakkskó og margt fleira mjög furðulegt og óklæðilegt. En líka sitthvað sniðugt.

Hér er mynd sem ég fann á netinu af stelpu í flík úr Álnavörubúðinni. Eins og sjá má er þetta af gömlum lager:



Eftir "tuskó" ókum við á Eyrarbakka og Stokkseyri. Sáum kyngimagnað brim á leiðinni. Ég tók það upp á vídeó og pósta kannski síðar hér á blogginu þegar ég er í stuði (af því brim er fréttnæmt). Merkilegt hvað öldur geta verið stórar.

Svona var brimið sem ég sá...


Þessa mynd tók ég samt ekki heldur hann Jón Baldur.

Fengum okkur svo humarsúpu hjá Fjöruborðinu og sáum sólstafi útum gluggann. Ég fékk mér of mikið af brauði. Hvað er fólk alltaf að gefa manni svona gott brauð á veitingastöðum? Veit það ekki að ég þembist upp af brauði og verð eins og frímúrari í vextinum? Fjandinn.

Svo ókum við sem leið lá í bæinn og þá kom slydda. Heljarinnar og heilmikil slydda sem var svo búin þegar við komum til baka.

En það er gaman að fara í sunnudagsbíltúr. Það finnst mér. Ójá.

Næst ætla ég að skrifa um tortryggnis hysteríu og paranoju. Slíkt er ekki gott fyrir sálina eins og Brim og Álnavörubúðin.

Lóan er komin

...og það eru blóm í garðinu mínum! Túlípanar held ég...eða eitthvað þannig.

Af þessu tilefni ætla ég því í sunnudagsbíltúr með vinkonu minni. Við ætlum að syngja ættjarðarlög á meðan af því útvarpið er bilað. Munum byrja á heimabæ hennar, Hveragerði, og fara svo þaðan suður með sjónum til baka.

Hvað varðar myndirnar af köppunum DO og LJ ætla ég að láta þetta fylgja með. Saga frá fyrstu hendi. Maðurinn sem tók myndirnar:


Þegar Seðlabankastjórinn og fyrrverandi forsætisráðherrann hitti útigangsmanninn í haustkuldanum í miðbænum.

Ég sá Dabba kóng hitta Lalla Jóns á horni laugavegs og Ingólfsstrætis 24. nóvember í haust. Lalli vatt sér að Dabba og fór að ræða málin við hann. Ég hafði fylgst með þeim spjalla í drykklanga stund þegar ég hljóp út og fékk leyfi þeirra til að taka af þeim mynd, sem þeim fannst sjálfsagt. Að lokinni myndatöku spurði ég Dabba hvort hann ætlaði að fara að segja af sér og hleypa hæfari mönnum að, en hann spurði hvaða menn það ættu að vera. Bönkunum væri stjórnað af slíkum mönnum og við sæjum hvar þeir væru staddir. Ég sagðist ekki vera að tala um viðskiptafræðinga heldur hagfræðinga og þjóðhagfræðinga. Dabbi sagði að Seðlabanki Bandaríkjanna væri með um 200 slíka í vinnu, og hvar væru Bandaríkjamenn staddir. Ég sagði að við gætum ekki líkt Íslandi við Bandaríkin, og því síður önnur lönd, við værum að sökkva eins og steinn samanborið við aðra. Dabbi brosti og sagði að það væri nú einmitt kosturinn, við sökkvum hratt en verðum jafn fljót að komast aftur upp á yfirborðið. Stóísk ró Dabba, vinalegt viðmótið og huggunarorðin urðu til þess að ég hef aðeins bjartari sýn á framtíð okkar. Ef Dabbi getur verið svona jákvæður og rólegur, hvað er ég þá að æsa mig. Ég gekk brosandi aftur inn á kaffihúsið og drakk kaffið mitt.
5 mínútum síðar kom Lalli Jóns arkandi inn á kaffihúsið með 5000 króna seðil í höndinni og sagði að ekki væri að undra að við værum að fara í hundana, Seðlabankastjóri Íslands þekkti ekki íslenska seðla í sundur. Hann hafði beðið Dabba um 500 kall en fengið 5000 kall. Lalla fanst þetta mjög fyndið.
Ég hef hitt nokkra íslenska þingmenn í gegn um tíðina, m.a. Árna Johnsen og Halldór Ásgrímsson þegar hann var forsætisráðherra og hefur álit mitt á þeim tveimur horfið eftir þau kynni, ekki að það hafi verið mikið fyrir. Þeir brugðust við eins og innikróaðir litlir frekir krakkar. En þegar ég laumaði þessari spurningu á Dabba, þá heilsaði hann mér með handabandi og lagði hönd um öxlina á mér og ræddi málin rólega og yfirvegað. Eftir að hafa rætt málin við mig hélt hann áfram sínu samtali við Lalla og endaði á að gefa honum 5000 krónur. Ég held að fáir í hans stöðu hefðu gert það sama, og alls ekki mennirnir sem voru með allt að 64 milljónir á mánuði þegar allt lék í lyndi og eru nú búnir að setja landa sína út á ísinn. 
Þessi saga er til marks um húmorinn í Lalla og um þann mann sem Dabbi hefur að geyma þrátt fyrir að vera einn umdeildasti maður á Íslandi þegar þetta gerist. Ég tek fram að engir fjölmiðlar höfðu aðgang að þessum fundi, heldur voru þetta bara einlæg samskipti þriggja manna, hver úr sinni áttinni.

Kveðja,
Siggi Palli