Sýnir færslur með efnisorðinu Feminismi. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Feminismi. Sýna allar færslur

fimmtudagur, mars 19, 2009

meri, gylta, belja, tæfa, tík

Finnst þér ekki athyglivert að orðin sem eru notuð yfir kvenkyns-húsdýr hljóma neikvætt og illa þegar þau eru notuð sem lýsingarorð á konur:

Meri, gylta, belja, tæfa, tík, hæna...

-það eina sæta sem mér dettur í hug er læða og það er pínu tvírætt.

Skrítið.

miðvikudagur, ágúst 27, 2008

Beðið eftir manninum með borinn

Það er frekar undarlegt ástand í búningsklefanum þar sem ég æfi hjá World Class á Seltjarnarnesi. Engin klukka neinstaðar. Klukka er eitthvað sem allir þurfa á að halda þegar verið er að koma sér í gang á morgnanna. Allir búningsklefar eiga að hafa klukku. Konurnar í klefanum gera ekki annað en að spyrja hvor aðra hvað klukkan sé. Nánast í hvert sinn sem ég er þarna er einhver að furða sig á klukkuskortinum. Það er veggur þarna sem var eflaust settur upp fyrir klukku nema hvað að það vantar klukkuna. Þetta er búið að vera svona í marga, marga mánuði.

Síðast í fyrradag spurði ég hvernig staðan væri með klukkuna og stöðvarstýran svaraði mér því að hún væri enn að bíða eftir manninum með borinn.

Bíða eftir manninum með borinn?

Ég sagði henni að ég kynni að bora. Ég ætti meira að segja bor og bauðst til að koma með hann svona upp á djókið. Svo stakk ég upp á því að hún gæti farið og keypt bara svona hanka á ofurlímbandi. Henni þóttu þetta góðar hugmyndir en enn bólar ekkert á klukkunni. Af því "maðurinn með borinn" er ekki mættur.

Þetta þykir mér með endemum skrítið.

Annað sem er skrítið við búningsklefann í WC á Nesi er að þar er spiluð róandi tónlist. Klukkan 09:00 á morgnanna eru spilaðar Gymnopediur Eric Satie og annað sem lætur mann slaka á og hugsa um hvítar snjóflyksur í myrkri, kerti og arineld. Engin klukka og gymnópedíur.
"Eins og í kvennabúri," sagði ein í morgun. "Ætli strákarnir megi hlusta á Rás2?"

Vel að orði komist. Konurnar í kvennabúrinu slaka á og bíða eftir manninum með borinn.

Meira ruglið

Gerðu svo vel. Ein róandi gymnópedía sem hefur samt ekkert að gera með orðið Gym. Síður en svo:

þriðjudagur, maí 13, 2008

Tengslanet vagínu dentata

Um daginn sat ég á kaffihúsi og heyrði miðaldra, þybbna konu á næsta borði reyna að fá aðra til að koma með sér í svona ferð til að "efla tengslanetið". Ofsalega hvetjandi...."Svo endar ferðin á Bessastöðum, hjá fosseta Ísslands". Það fór um mig hrollur. Fyrr myndi ég drekka vatn úr tjörninni en að fara í ferð sem á að efla "tengslanet kvenna".

Annaðhvort hefur maður það í sér að vilja þekkja fólk eða ekki. Það er eitthvað ekki rétt við það að introvers fari í rútuferð með 50 háværum einstaklingum til að efla tengslanetið við aðila sem hafa sömu kynfæri. Sjáum fyrir okkur karla sem plana að gera innrás í heim umönnunarstarfa til að ná jafnrétti við konur og ráðleggja í því skyni rútuferð sem endar hjá "fossetanum." Sjæse!

Í raun er ég með ofnæmi fyrir öllu sem er með forskeytinu "kvenna" þessa dagana. Ég hafði ekki þetta ofnæmi fyrir svona fimm til sjö árum, en það er eitthvað vagina dentata ævintýri farið af stað í þessu þjóðfélagi sem gengur út á hluti sem ég botna ekki beint í.

Persónulega er ég samt langt frá þessu "konur konum verstar" bulli. Hlustiggi á svoleis því ég veit það er ekki satt, en þetta movement... þetta "Við KONUR" finnst mér hræðilega fráhrindandi af því það gerir ráð fyrir því að allar konur hugsi eins og séu með sömu skoðanir -sem þær hafa ekki.

Um leið og þú ymprar á því að þú sért feministi, þá er eins og það sé sjálfgefið að sá skoðanapakki komi úr HÍ, úr hugarheimi einhverrar Helgu sem ég hef aldrei hitt... og gengur að stórum hluta út á einhverja vitleysu að mínu mati. Einhverjar útúr akademískar ofur analíseringar manneskju sem ætti kannski að byrja að sprauta sig með testesteróni þar sem hana virðist langa svo mikið til að verða karl. Frá mínum bæjardyrum séð virðist það fremur markmiðið en að kvenmenn njóti virðingar (sem þær gera ekki) fyrir það sem þær velja sér í lífinu (og Rannveig Rist verður svaka hetja af því hún er að gera það sem er "karlalegast"...).

Já, það er eins og það sé bara eitthvað dogma viðhengi á orðinu feministi og um leið og skoðanirnar skarast eitthvað á við þetta árans dogma þá verða bara læti. Og vá hvað það voru mikil læti þegar ég, í sakleysi mínu, skráði mig á póstlista feministafélagsins. Ég sem var svo glöð þegar þetta félag var stofnað. Og ég sem varð svo leið þegar forpokaðar og mótsagnarkenndar kreddurnar stigu upp á yfirborðið. Og mikið varð lognið í tölvunni minni þegar ég skráði mig af þessum ömurlega lista.

Þegar ég heyri orðin "tengslanet kvenna" þá virkar það jafn aðlaðandi á mig og að fara í veiðiferð með ýstrubelgjum úr frímúrarareglunni, totta vindla og segja hohoho. Ég bara verð að segja pass. Er ekki eitthvað annað í boði?

Og næst þegar ég heyri orðið "tengslanet" þá ætla ég að hvæsa.

föstudagur, desember 07, 2007

"Kynlaust" jafnrétti-Framhaldssaga

Hún Jóna mín Ingibjörg skrifaði þessa góðu færslu hér og ég skrifaði eftirfarandi á kommentakerfið hennar af því ég hef velt þessu svo mikið fyrir mér. Pæling Jónu er hvort óvart sé verið að "afsexúalísera" konur í jafnréttisbaráttunni. Já svei mér þá...

***

Ó Jóna. Þú ert mér svo að skapi. Ég hef margoft velt þessu fyrir mér. Það er oft eins og konur verði að vera "ósexí" til að tekið sé mark á þeim eða til að þær nái árangri á eigin forsendum. Sá þetta fyrst í myndinni um Erin Brockovick (eða hvernig sem maður stafar það). Hún var einmitt rosa hörð í horn að taka en með risa bobbinga og í stuttu pilsi. Slíkt á enga samleið í hinu félagslega býflugnabúi sem býr í heilahvelum flestra. Konur í stuttum pilsum eru í einu hólfi og konur sem eru klárar eru í öðru hólfi og það eru mörg mörg hólf þarna á milli. Annað sem er svolítið fyndið er hvernig konur verða að dýpka röddina sína til að frekar sé hlustað á þær. Thatcher, Sólrún, Togga... allar í bassaþjálfun. Þetta er eins og eitthvað grín.

Ég neyðist til að vitna í Joseph Campbell sem er einn af mínum eftirlætis hugsuðum. Hann sagði eftirfarandi í spjalli við Fraser Boa fyrir löngu og ég hef svei mér þá hugsað mikið um þetta og komist að niðurstöðum:

"Women of today have been sold a bill of goods by the male oriented-society which is stressing achiving rather than being"


...og einmitt út af því verða þessar konur (sem hafa keypt það að karlagildi og áhugasvið séu það eina sem vert sé að keppa að) að afneita kynverund sinni ef þær vilja ná langt í karlheimum, því síðan hvenær hefur körlum þótt þægilegt að hafa kynþokkafulla og klára konu í kringum sig? Kynþokkinn er eina raunverulega valdið sem konur hafa umfram karla. Kynþokki konu afvopnar karl og gerir hann mállausan og hví skyldi hann þá vilja kynþokkafullann kvenmann á sínum vinnustað? Við vitum jú öll hvernig fór fyrir Gunnari "graða" á Hlíðarenda.

Akkúrat... og þetta kaupa konur (eins og svo margt annað) af körlum og afsala sér um leið kvenlegum kynþokka til að geta spilað með.

U dig?

****
Þá sagði Jóna:

Hæ, mín kæra Maggabest-ljúft að fá þig í heimsókn. Get tekið undir þetta sem þú segir með "hólfin". Mín vegna mega þau alveg vera þéttari eða nær hvort öðru og að öll hólfin eigi sitt pláss.

Ætti það ekki að vera nóg að sjá konur sem eru að kaupa "bill of goods" í röndóttum jakkafötum til að fá staðfestingu um að kaupin hafi verið gerð. Bassaþjálfunin er í stíl við rendurnar.

Og aftur að öðru, hvar í veröldinni ætli það viðurkennt að konur hafi þetta kynþokkavald? Mér þætti gaman að heimsækja þann stað!


Jóna Ingibjörg Jónsdóttir, 7.12.2007 kl. 09:24

****

Þá sagði ég:

Þetta vald er nottlega viðurkennt sumsstaðar í arabalöndunum og þar sjáum við augljós viðbrögð sem felast í mismunandi aðgerðum til að hafa "kontról" á ósköpunum. Konum var til dæmis bannað að hjóla í afganistan... að sjálfssögðu er víðast hvar bannað að ganga í stuttum pilsum, að mála sig þykir ekki til siðs, best er að hylja hárið og svona mætti lengi telja."....Við viljum ekkert fara að lenda í veseni strákar".... Karlkyns arabar eru með þetta uppi á borðum.

Hérna megin er þetta ekki viðurkennt opinberlega en við höfum vanið okkur á að vera ekkert allt of hress með þetta vald og það má t.d. vel sjá á hinu vonda reppi sem hún Hallgerður okkar Höskuldsdóttir hefur fengið í gegnum aldirnar en þar var kona sem nýtti augljóst kynþokkavaldið og fékk óþokkastimpil fyri vikið. Varð kynóþokki.

Svo er náttúrlega minna mark tekið á konum sem eru kvenlegar og kynþokkafullar. Það er ósjálfrátt gert ráð fyrir að þær séu ekki beint gáfaðar, nema þær búi yfir svona Lauren Bacall/Gretu Garbo kynþokka (sem var jú dimmraddaður og maskúlín)...
Til dæmis þykir það saga til næsta bæjar að Jane Mansfield hafi verið í Mensa. Hún var jú með svo rosalega stór brjóst og svo svakalega aflitað hár. Þetta veit ég og þó eru meira en 40 ár síðan daman sú fór yfir móðuna miklu.

Já.... svona er þetta grín. Það fyndnasta er hvernig forpokaðir feministar (n.b. ég tala nú um FF til að aðgreina feministann sjálfa mig) taka oft þátt í þessu og álykta ósjálfrátt að kynfrjálsir kvenmenn hljóti bara að vera með skerta sjálfsmynd og eitthvað að hjá þeim. Verða "Patróníserandi" og af hverju er það orð nú aftur dregið... ha? hummm?

sunnudagur, júní 10, 2007

Stuð milli stríða Aðlaðandi er konan ánægð

MHG vill ekki vera karl heldur feminin feministi
.
Ein merkilegasta bók sem ég hef lesið er án efa bókin Aðlaðandi er konan ánægð eftir leikkonuna Joan Bennett. Bókin heitir á frummálinu How to be attractive og kom fyrst út árið 1941, en fjórum árum síðar var hún þýdd og útgefin hérlendis.

Ég fann þennan merka grip á bókasafni fyrir mörgum árum og las af miklum áhuga, því sannarlega tek ég undir þessa yfirlýsingu Joan að vissulega hljóti "konan" að vera ánægð þegar aðrir að henni laðast.

Bókinni var ætlað að vera einskonar handbók fyrir mýkra kynið um hvernig á að líta vel út, koma fallega fram og vera á allan hátt sem dömulegust og mest aðlaðandi. Til þess ráðlagði Joan kynsystrum sínum meðal annars að bursta hárið daglega, hreinsa húðina kvölds og morgna, drekka vatn, borða smjör og rjóma ef þær vildu fitna og sleppa því ef þær vildu grennast. Allt saman mjög skynsamlegar athafnir sem liggja í sjálfu sér í augum uppi.

Það merkilega við þessa bók er þó að mínu mati ekki fegrunar- og aðlöðunarráð fröken Bennett, heldur formáli bókarinnar því í honum talar hún beint til kynsystra sinna og fer þar yfir breytta stöðu mála í seinni heimsstyrjöld. Nú séum við stelpurnar farnar að vinna úti en það þýði samt ekki að við þurfum að láta selja okkur aðra karlavitleysu. Auðvitað vilji konur halda áfram sínu pjatti þó þær séu útivinnandi. Að karllæg gildi séu ágæt, en vitanlega verði að halda áfram í þessi kvenlegu. Ekki breytast í karlkonur. Af einhverjum ástæðum virðast þó sumar kynsystur mínar hafa misskilið þetta. Halda að til að ná jafnrétti verði konur að verða eins og karlar. Gleyma því að kvennapjatt er mjög skemmtilegt þó að það flokkist ekki sem virðingarvert í hugum karla og pjattaðir karlar þyki púkó.

Gleyma því að aðlaðandi er feministinn ánægður. Gleyma því að til að hið svokallaða jafnrétti felst ekki í að verða eins og karl, heldur að fá að njóta virðingar fyrir það sem við erum – eins og við erum.

föstudagur, maí 11, 2007

Karlar Grilla, konur sjóða

Það hefur lengi verið ráðgáta fyrir mér hvers vegna flestir karlmenn sýna sérstakan metnað við aðeins eina tegund af matreiðslu. Af einhverjum ástæðum virðist það þykja karlmannlegt að grilla. Og hvers vegna skyldi svo vera? Er það vegna þess að þetta er „hættulegt“?

Það þarf að dreifa kolum. Svo þarf að úða yfir þau stórhættulegum grillvökva. Þar næst þarf að kveikja í kolunum með eldi. Eldurinn þarf að loga glatt í svolitla stund og svo verða kolin að hitna. Þegar þetta er allt orðið eins og best mætti ætla á að leggja kjötstykkin á grillið og snúa þeim svo reglulega við með þar til gerðum grófum töngum. Karlmennska? Ég veit það ekki.

Heitt vatn er hættulegt

Að sjóða mat getur verið alveg jafn hættulegt. Það þarf að hita vatn í potti á sjóðandi heitri hellu. Hellan og vatnið eru svo heit að það er jafnvel lífshættulegt að fá þetta yfir sig. Að sjóða mat getur verið ámóta hættulegt og að flækjast fram á hengiflug. Það er að segja ef maður kann ekki réttu tökin. Ef maður er óöruggur með pott fullan af heitu vatni þá gæti farið svo að vatnið helltist yfir einhvern með hrikalegum afleiðingum.

Cheese serial killer

Hefðbundin hlutverk kynjanna hljóta að mestu leiti að snúast um áhuga þeirra á ólíkum sviðum. Og það truflar mig ekkert sérstaklega mikið að þessi áhugasvið séu oft ólík. Reyndar væri gaman að karlar sýndu almennt meiri metnað við matseld og önnur heimilisstörf. Kannski þyrfti bara að gera þau „karlmannlegri“ til að þeir sýndu meiri áhuga. Kannski væri sniðugt að elda fyrir opnum hlóðum innifyrir? Þá þyrfti að skara eld og bera risavaxna potta um í eldhúsinu. Eins mætti gera eldhúsáhöld karlmannlegri. Allt þyrfti að vera úr börðu járni eða stáli og bera nöfn á borð við Turbo 2000 sleifasett, Jacked Steel þeytari, Cutting edge matvinnsluvél, Evil knivel kökukefli o.s.frv. Ostaskerinn gæti t.d. heitið Cheese serial killer turbo 666. Þetta gæti hugsanlega virkað hvetjandi.

Ber að ofan

Svo mætti líka mælast til þess að þeir væru berir að ofan við matseldina. Af einhverjum ástæðum finnst okkur það ekki óþægileg tilhugsun að sjá fyrir okkur karlmann, beran að ofan með bjór í hönd að grilla pylsur. En um leið og grillarinn er kona, ber að ofan með bjór í annari að grilla pylsur með hinni þá slær einhverju saman í höfðinu og fegurðarskyninu er ógnað á framandi hátt.

Var Gunnar félagsmótaður?

Sumir halda því fram að þetta sé allt saman félagsmótun. Að konur séu félagsmótaðar til þess að vilja elda og halda heimilinu skikkanlegu og karlar félagsmótaðir til að vilja grilla og eiga verkfæratösku. Það má vel vera, en að einhverju leiti hlýtur þetta líka að snúast um áhuga. Kannski félagsmótaðan áhuga? Hugsanlega eru konur leynt eða ljóst hvattar til þess að hafa áhuga á heimilinu á meðan karlar eru hvattir af samfélaginu í heild sinni til að hafa áhuga á öðrum hlutum og finnast það ekki merkilegur metnaður að baka góðar skúffukökur og halda heimili í anda Mörtu Stewart. Af hverju eru konur t.d. ekki jafn spenntar fyrir því að grilla og karlmenn? Af hverju hækkar ekki brjóstkassi þeirra í sumarbústaðnum um leið og þær hella kolum ofan í grillið? Hvar byrjaði þetta? Grillaði kannski Gunnar á Hlíðarenda eða sá ostaþjófurinn Hallgerður um það? Maður spyr sig.

sunnudagur, maí 06, 2007

Krikaloð, klám og nárahár skipta litlu máli

stuð milli stríða
Margrét hugrún gústavsdóttir er með ofnæmi fyrir forpokuðum femínisma

Í mörg ár hef ég kallað mig feminista, en eftir að hið forpokaða "Feministafélag" var stofnað árið 2003 varð ég feimnari við það.

Framganga þeirra, áherslur og málflutningur hafa leitt til þess að ég og fleiri mega varla heyra minnst á orðið feministi. Sumir fara jafnvel í vörn og segjast alfarið á móti fyrirbærinu, krossa við að konur eigi að þvo og karlar að skipta um perur.

Á sínum tíma tóku nasistar aldagamalt tákn um gang sólarinnar og gerðu að sínu. Þetta var fínasta tákn, en eftir notkun nasista mega fæstir sjá svastiku án þess að myndir af fjöldamorðum og viðbjóði skjóti upp kollinum í vitundinni. Svipað hefur gerst með orðið "feministi". Fyrir nokkrum árum voru margir sem þekktu vart muninn á orðinu feminin og feministi, en í dag hefur hið síðara nánast orðið að skammaryrði hjá mörgum... líka þeim sem aðhyllast jafnan rétt kynjanna.

Eftir stofnun Feministafélagsins dregur orðið "feministi" þannig fram hugmynd um öskureiðan kvenmann sem þolir ekkert sem viðkemur kynfrelsi eða almennu fjöri. Krikaloð og nárahár eru meðal þess sem hún ergir sig yfir og hennar hugmynd um jafnrétta konu er Rannveig Rist eða önnur sem hefur unnið ámóta sigra í karlheimum.

Konur og hommar eiga það sameiginlegt að þykja ekki neitt sérlega fínar skepnur og eiga því sína baráttudaga í dagatalinu. Niðrandi lýsingarorð eins og hommalegur, stelpulegur, hleypur eins og stelpa, keyrir eins og kerling o.s.frv. sanna þetta. Að vera strákaleg þykir þó ekki niðrandi fyrir konu og að hlaupa eins og strákur er ekki "slæmt". Bara þetta gefur okkur góða ástæðu til endurmats á eigin viðhorfum.

Af hverju er gott fyrir konu að vera eins og karl, en vont fyrir karl að vera eins og kona? Þessu vil ég gjarna breyta, með jöfnum blóðþrýstingi og án þess að einblína á krikaloð og klám í leiðinni.

Og hvaða máli skiptir hver þvær, svo lengi sem bæði leggja sitt af mörkum?

laugardagur, febrúar 24, 2007

Feminismi Möggu Best

Af hverju eru stelpum ekki kenndar sjálfsvarnaríþróttir í grunnskóla? Ég er ekki endilega að tala um svartabeltisprógramm, heldur bara nóg til að þær þurfi ekki endilega að vera veikara kynið ef á þær er ráðist? Ef ég réði einhverju um þessi mál þá myndi ég láta grunnkúrsa byrja svona um níu, tíu ára aldurinn og halda þessu áfram þar til komið er í tíunda bekk. Það yrði töluvert flóknara fyrir úlfinn að ráðast á Rauðhettu ef hún kynni kendo, akido eða jujitsu.

Sjáðu bara!

miðvikudagur, febrúar 21, 2007

Til forpokuðu forkonunnar

Hin æsta forkona femínistafjélagzins var að bölva Hollensku klámskrímslunum á blogginu sínu. Þar smellti einhver inn hlekk á færsluna sem ég skrifaði um baráttuaðferðir hennar og skammaðist út í mig um leið. Ég skrifaði þetta í athugasemdarununa. Kannski að ég geri mig skiljanlegri svona:

Halló hressa fólk. Gaman að þessu. Best að bæta við athugasemd við þessa fjörugu klámumræðu. :)

Sjálfri finnst mér það niðurlægjandi gagnvart fullorðnum konum að ætla að þær hafi ekki sjálfsstæðan vilja til að ákveða hvort þær vilji taka þátt í klámrugli. Vissulega tíðkast mikil spilling í þessum bransa. Karlarnir og konurnar eru oft í dópi (eins og í rokk og módelbransanum) og áttu erfiða æsku (eins og í rokk og módelbransanum), en ef fólkið er orðið eldra en 18 þá hlýtur það að vera þeirra mál hvað það gerir við sitt líf. Hvort það vill skemma það með því að vera berrassað á mynd eða ekki.

Að fókusera svona mikið á kynlífsmál í feminisma umræðum finnst mér hættulegt fyrir málsstaðinn. Kynlífssmekkur er ótrúlega misjafn og enginn ætti að ákveða fyrir annan hvað er í lagi og hvað ekki. Það eina sem við getum hinsvegar öll kvittað undir er að allar athafnir þar sem valdi er misbeitt eru ósamþykkjanlegar. Í þessu samhengi finnst mér t.d. orðið „barnaklám“ vera tómt rugl því í hugum flestra tengist þetta orð allsberu fullorðnu fólki að sprella fyrir framan myndavélar.

Þegar fullorðnir sýna börnum kynferðislega tilburði þá er alltaf, undantekningarlaust um ofbeldi að ræða og því ætti aðeins að nota orðið "myndir af kynferðisofbeldi" í þessu samhengi en láta orðið "klám" tilheyra fullorðnum og því sem fullorðnir gera.

Það er nóg af ofbeldi gagnvart kvenfólki í heiminu. Það er líka framið ofbeldi gagnvart gömlu fólki, börnum og ýmsum minnihlutahópum. Þetta er mein sem fylgir mannkyninu og við erum alltaf að reyna að gera eitthvað til að laga þetta.

Feminismi á hinsvegar að ganga út á að karlar og konur sýni hvoru öðru gagnkvæma virðingu. Karlfyrirlitning er ekki orð sem við eigum í orðaforðanum en kvenfyrirlitning er hinsvegar þekkt. Daginn sem við hættum að segja:

-Kerlingarleg

-Ráðherra (akkuriggi frú?)

-Flugmaður (akkuriggi kona eða „fræðingur“?)

-Hleypur eins og stelpa

-Keyrir eins og kelling

osfrv... og notum þau í niðurlægjandi merkingu... þá erum við kominn mjög mjög langt.

Og daginn sem karlar hætta að gera grín að áhugamálum kvenna, umönnunarstörf verða metin að verðleikum og konur fá jafn mikla virðingu hvort sem þær eru með krikaloð og í mussu eða minipilsi og með bleikt gloss... Já þá verður gaman! Og kannski byrja konur allt í einu að skilja af hverju flestir karlar loka ekki klósettinu og karlar taka kannski skyndilega upp á að skilja af hverju konur vilja að því sé lokað... og byrja bara að loka því... án þess að finnast þær asnalegar. Já... jibbí... þá verður gaman.

Í pistlinum mínum var ég að gagnrýna þessi læti og þessa endalausu reiði. Að skammast yfir klámi og ámóta vitleysu og einblína svona á kynlífstengda hluti. Ghandi var einn sá besti í því að vinna gegn óréttlæti og ekki var hann neitt sérlega æstur. Nei, hann var sérlega rólegur. Það virkar betur. Að æsa sig endalaust yfir svona stóru máli sem hefur verið að þróast í gegnum fleiri, fleiri, fleiri kynslóðir og er enn að þróast... er eins og að berjast við vindmillur. Svo heyrist líka verr hvað verið er að segja þegar það er æpt. Fólk fer í vörn og sér fyrir sér hina ógurlegu Vagina dentata... Kali... eða kannski bara Grýlu?

Pís

fimmtudagur, febrúar 15, 2007

Forpokuð forkona femínista

Alltaf þegar ég sé hana þarna Katrínu Önnu, formann Femínistafélagsins, þá verður mér hugsað til lagsins You give love a bad name með Bon Jovi.

Það er nefninlega tilfellið. Þetta félag hefur gert þessari mannréttindabaráttu meira slæmt en gott. Þær hafa margar komið óorði á fínan málstað með ruglingslegum fókus og úr sér gengnum baráttuaðferðum. Margir sem héldu að femin.is og feministi væru sama fyrirbærið fyrir stofnun þessa félags, halda nú að feministi sé það sama og vagina dentata. Einhver andstyggilegur hryllingur sem langar til að gelda allt karlkyns og gera allar konur að mussuhippum með krikaloð sem hata kynlíf á prenti.
Þetta er því miður hinn mesti misskilningur því við sem vitum hvað orðið feministi þýðir með réttu, vitum að feminismi er allskonar og að feministar eru jafn misjafnir og þeir eru margir.

Fyrir mér (sem feminista) er til dæmis öllu mikilvægara að hætt verði að tala niðrandi um svo margt sem konur kunna vel að meta. Eða nota orðið stelpa sem niðrandi lýsingarorð. Eða að gert sé lítið úr því sem konur kunna betur en karlar, eða geta betur eða vilja heldur. Ég vil bara einfaldega að bæði konur og karlar sýni kvenkyninu meiri virðingu.

Friður~*

miðvikudagur, desember 14, 2005

Pepp pistill

Í dag voru birtar niðurstöður úr rannsókn sem HÍ lét gera á hlut kvenna í fjölmiðlum. Niðurstöðurnar voru þær að karlmenn eru amt. 75% oftar í fjölmiðlum en konur og það á við um fréttir, auglýsingar, íþróttaumfjöllun, sjónvarpsþætti, fréttatengda þætti osfrv. Í öllum tilfellum nema einu eru karlar fleiri. Það er þegar kemur að fyrirsætum, þá eru þeir bara 15%.

Þetta segir manni hvað? Að konur séu bara ekki að gera neitt spennandi? Að þær hafi ekkert að segja? Að þær séu ekki sérfróðar á ýmsum sviðum? Að....

Þetta segir, í mjög einfölduðu og stuttu máli að konur verða að vera sætar til að fá aðgengi í fjölmiðla og þá skiptir engu máli hvað þær hafa að segja um eitt eða neitt, eða hvað þær geta. Það er nóg að vera sæt. Þetta flokka ég ekki undir það að vera metin að verðleikum. "Ég er sæt" flokkast ekki undir verðleika.

Gagnrýnivert. Finnst þér ekki?

"Ég er sæt" verðleika firringin, er m.a. ástæðan sem liggur að baki anórexíu. Stelpur halda að til þess að einhver taki mark á þeim, til þess að þær séu sýnilegar, til þess að þær fái kredit sem manneskjur, hugsandi manneskjur, þá verði þær að vera fallegar... og grannur líkami er vissulega talinn fegurri en feitur (af flestum).

Strákar hinsvegar geta verið allskonar, og samt fengið að starfa sem þáttastjórnendur ofl. Sjáðu bara Egil Helga. Ekki er hann sætur, en hann stjórnar "kallaspjallþætti" og margir myndu vilja verma hans sæti. Ekki er Halldór Ásgrímsson mjór, ekki Guðni, ekki þurfa þessir þingmenn að vera grannir og sætir... en tékkið á konunum. Þær eru allar afburða myndarlegar.

Ég, og fleiri, erum bara orðin ógeðslega þreytt á þessu rugli. Það væri svo næææssss ef fólk bæri sömu virðingu fyrir kvenlegum gildum og kvenleika og karlmennsku.

"Þú hleypur eins og stelpa" "Þú keyrir eins og kerling" "Ertu að grenja eins og stelpa"...

Það væri eins hægt að skipta orðinu "stelpa" út með orðinu "fáviti".

"Þú hleypur eins og fáviti" "Þú keyrir eins og fáviti" "Ertu að grenja eins og fáviti"...

Prófum að setja orðið "strákur"...

"Þú hleypur eins og strákur" "Þú keyrir eins og strákur" "Ertu að grenja eins og strákur"...

Strax skárra. Hvað er það? Hvað er að?


Og ef hlutur kvenna og karla er 50/50 í fjölmiðli, t.d. blaði, þá upplifa flestir blaðið sem kvennablað... og það þykir ekki fínt... þannig að ósjálfrátt forðast það fólk sem stjórnar fjölmiðlum að gera hlut kvenna virkari svo að þetta verði nú ekki eitthvað "kerlingablað".

Og þið, stelpur sem eruð að rífa ykkur og skiljið ekki merking orðsins feministi... Ef ekki væri fyrir svokallaða "feminista" þá hefðuð þið ekki kosningarétt í dag.
Og þið mættuð ekki fara í skóla. Think about it.

Í dag erum við bara að reyna að búa til heim fyrir barnabörnin okkar. Það eru núna 90 ár síðan konur fengu rétt til að kjósa. Kannski eftir 50 ár verðum við með sömu laun og karlar fyrir sömu störf. Kannski eftir 50 ár þurfum við ekki að leggja tvisvar sinnum harðar að okkur til að komast í sömu stöður.

Núna erum við öll meira eða minna haldin kvenfyrirlitningu í einni eða annari mynd. Bæði karlar og konur. Að bera ekki jafn mikla virðingu fyrir konum og körlum er síað inn í vitund okkar gegnum kynslóðaminni og arf.

Við þurfum bara að halda fyrir nefið og hætta þessu rugli til að koma á breytingu. Við þurfum að virða kvenleika jafn mikið og karlmennsku og gera jafnhátt undir höfði. Listakona á ekki að þurfa að kalla sig listamann til að fá virðingu og ráðherra sem er kona á ekki að þurfa að kalla sig "herra".

Það er vel hægt að breyta heiminum. Það tekur smá tíma. Fyrst er að breyta sjálfri sér (ertu ekki annars manneskja stráksi minn, persóna, þú sjálf...?) Og svo breytist heimurinn smátt og smátt.

Ég segi bara eins og Hallgrímur... Þetta er allt að koma!

miðvikudagur, október 26, 2005

Þrælabarátta

Þrælar að berjast fyrir frelsi uppskera ekki mikinn árangur á meðan það eru bara þeir sjálfir sem þramma til styrktar sjálfum sér. Það er ekki fyrr en eigendur þeirra og yfirvald byrjar að sjá að sér og hugsa...

-Hvern fjandann erum við eiginlega að gera? Af hverju erum við að halda þessu fólki svona niðri?

.... Að eitthvað róttækt fer að gerast í málum þeirra. Þetta segir sig sjálft. Þannig að pabbar....

Er ekki tímabært að ákveða sig bara núna!? Verða heilshugar feministar svo að litlu stelpurnar ykkar, sem eru klárar og skemmtilegar, verði sem fyrst metnar að þeim verðleikum en ekki út frá því hversu mikið þær líkjast Barbie og Cindy.

Svo að litlu stelpurnar ykkar fái að njóta sín í starfi. Því starfi sem þær kjósa sér. Svo að þær njóti sömu virðingar og þið og verði ekki alltaf undantekningarkynið og kynið sem má nota sem blótsyrði þegar svo ber undir.

Svo að... ef einhver svívirðir þær, nauðgar eða meiðir, að ofbeldismaðurinn fái makleg málagjöld en sleppi ekki með því að fá að borga nokkrar krónur til ríkissjóðs.

Svo að... þegar þær eru búnar að leggja hart að sér og standa sig , fái stöðuhækkun innann fyrirtækisins og einmitt þessvegna, en ekki af því þær spila fótbolta og golf með strákunum á toppnum eftir vinnu.

Er ekki bara góð hugmynd að vinna saman að því að þær stelpur/konur/kjéllingar sem eru virkilega að leggja hart að sér fái djobbið, til þess að dætur ykkar hafi fyrirmyndir.

Ha? Þið verðið ekkert minni karlmenn fyrir vikið. Koma so! Sýna ást í verki!

miðvikudagur, október 12, 2005

klukkun

Helga klukkaði mig aftur þannig að best að ég komi með fimm staðreyndir til að falla inn í plebbisma bloggheimsins.

1. Ég kunni ekki að leika mér með dúkkur þegar ég var barn. Klippti alltaf af þeim hárið og teiknaði á þær þriðja augað.

2. Ég hef ekki borðað rautt kjöt í 1o ár. Finnst pervertískt að borða dýr sem skilja mig og geta tengst mér tilfinningaböndum.

3. Ég tek ofbeldi gegn börnum og konum sérstaklega nærri mér og er feministi af Guðs náð.

4. Þegar ég var unglingur fannst mér ég hafa feit læri en það truflar mig ekki hið minnsta lengur.

5. Mér var hent út af Borgarspítalanum í morgun af því þeim leist þannig á mig að ég gæti farið heim. Mig langaði ekkert heim. Langaði að vera þarna lengur. Líður akkúrat nuna eins og svona fiski með bólginn haus. Finnst íslenskt spítalasujstem frekar pólskt. Eins og ég upplifi "pólskt".

föstudagur, október 29, 2004

Karlremba og kvenremba

Hann Björn Jörundur var að koma með nýja skilgreiningu á orðinu:

Karlremba = Maður sem rembist við að vera karl (samkvæmt eigin hugmyndum um karla).

Mjög fínt... og búum okkur svo undir eina allherjar umræðu því feministafélagið (kvenremburnar) voru að leggja til atlögu við bOGb af miklu offorsi. Til dæmis með því að vaða í búðir og líma "frelsi til að hafna" miða á vöruna.
Einmitt þegar þetta blað er hætt að sýna tippi og píkur, þá ákveða þær að missa sig... döh.

Heimurinn og fjölmiðlarnir eru allir haldnir einhverri kvenfyrirlitningu. Sérstaklega blöð eins og t.d. Vikan og Femin.is sem gera ráð fyrir að það eina sem stereótýpískir kvenmenn hafi áhuga á séu uppskriftir, barneignir, sníps erti krem, tilfinningar, megrun, persónuleikapróf, föt og fegurð. Af hverju er ekki hægt að bitsast í þeim? Og ef konur mega gefa út blöð með efni sem á að höfða til kvenna, af hverju mega karlar þá ekki gefa út blöð með efni sem þeir telja að höfði til sín, hvort sem það er fótbolti, grillferðir, gufuböð og brjóst eða eitthvað annað... (persónulega finnst mér bæði konseptin púkó).
Og viti menn/konur! Fréttablaðið sýnir mér líka fyrirlitningu með því að 90% alls umfjöllunarefnis í blaðinu er karllægt. Kastljós þættirnir sýna mér fyrirlitningu með því að hafa nánast aldrei kvenmenn í viðtölum, og þegar það er þá eru það oftast einhver "kvennamál" sem er verið að ræða (og það sama á við í t.d. Fréttablaðinu).
Íslenska tungumálið sýnir mér fyrirlitningu með því að tala alltaf um "þá" á alþingi, "þeir" hjá RÚV, "þeir" í Landsbankanum o.s.frv... eins og það séu bara "þeir" karlarnir sem vinni þarna en ekki "Þau" starfsfólkið. Nú og svo sú staðreynd að enn sé talað um ráð-HERRA.
Mér er sýnd fyrirlitning þegar ég sem um laun og fæ að vita að strákur, 10 árum yngri en ég, með sömu menntun en í mun auðveldara starfi sé með hærri laun.
Mér er sýnd fyrirlitning þegar starfið sem ég sæki í breytist í kvennastarf og verður fyrir vikið verr launað. Mér er sýnd fyrirlitning þegar ég fæ ekki vinnu vegna þess að ég er ólétt og mér er sýnd fyrirlitning þegar ég er rekin úr vinnu fyrir að vera ólétt.

Svo eru það ekkert bara karlar sem eru haldnir kvenfyrirlitningu. Við erum öll haldin kvenfyrirlitningu á einhverju stigi og ættum bara að horfast í augu við þá staðreynd og gera eitthvað í málinu á öllum sviðum í stað þess að einblína svona endalaust á þetta kynferðislega og það að karlar hafa gaman af að glápa og stelpur fíla að sýna sig.
Alveg frá því við komum í heiminn er okkur kennt að stelpur séu síðri en strákar (annars flokks borgarar) og að flest sem tengist stelpum sé á einhvern hátt ekki jafn göfugt og það sem strákar gera. Til dæmis öll þessi týpísku kvennastörf, kvenna íþróttir, eða kvennalist, eða kvenna hvað sem er... ugghhhhhhh....þetta ergir mig.

Nenni ekki að skrifa meira.
Sjáum hvað gerist í þessu máli með bOGb...

föstudagur, september 12, 2003

Minnihlutahópar:

Konur
Svertingjar
Börn
Eldri borgarar
Samkynhneigðir
Frelsaðir
Líkamlega fatlaðir
Andlega fatlaðir
Barnlausir
Innflytjendur
Ríkir
Frægir
Óvirkir alkar
Rónar
Einstæðar mæður
Feministar
Umhverfissinnar
Grænmetisætur
Líkamsræktarfrík
Jóga iðkendur





laugardagur, maí 10, 2003

Hryyyylllilega finnst mér íslendingar oft vitlausir. Þeir eru að mörgu leiti bara svona eins og hjólhýsafólk í BNA. Ótrúlega óupplýst lið. T.d svo óupplýst að það þekkir ekki muninn á feminin eða feminista, femin.is eða feministinn.is. Ruglar þessu öllu saman þannig að stelpan sem er með femin.is þarf að koma fram í Fréttablaðinu og segja; ég er ekki feministi... hahahah.... :)

Svo þessi snilldar ranghugmynd um að allir femmar séu bara loðnar konur með kringlótt gleraugu sem fá ekkert kynlíf. Þessi stelpa:



er t.d. feministi og þetta er feminstarit á netinu.

Hvernig væri að rumska aðeins og komast úr helv... roðskónum og inn í 21.öldina?

-Take a chill pill...

þriðjudagur, apríl 29, 2003

Jesús minn...

Í gær fór ég í rosa bíltúr út um allan bæ til að ná í staðfestingar og meðmæli frá fyrri og núverandi vinnuveitendum. Þetta var rosalega vírd. Oftast sat ég fyrir framan fólkið á meðan það skrifaði þetta og einn lét mig skrifa meðmæli fyrir sjálfa mig. Svo las ég þetta frá öllum og allstaðar stóð að ég væri hugmyndarík og skapandi og ég fór að rífa mig niður fyrir að vera aðallega bara að blogga eitthvað út í bláinn í staðinn fyrir að skrifa bækur eða eitthvað. Eftir langa og stranga rúnta endaði ég uppi í FB til að reyna að fá einhvern súran námsráðgjafa til að meta lufseríið mitt úr dönskum lýðháskóla til eininga. Hún heldur því fram að ég geti í mesta lagi náð 35 einingum úr öllu þessu hálfkáki hjá mér og horfir glottandi og patróníserandi á mig: "Mér finnst þú bjartsýn að halda að þú komist inn í Háskóla Íslands, ekki búin að ljúka stúdentsprófi í dönsku, ensku eða íslensku"... Ég fór í massa vörn og sagði "Hey (tíkin þín), ég má vera bjartsýn. Ég VINN við að SKRIFA á Íslensku. Fæ borgað í $$$ fyrir að skrifa. Ég SKRIFA á ENSKU fyrir tímarit sem eru gefin út á ENSKU og ég bjó í DANMÖRKU í 4 fokking ár... ergo: ég tala, skrifa og les DÖNSKU. Svo bætti ég því við að ég hefði verið að vinna með fólki sem væri með Master í heimspeki og mannfræði og að við hefðum verið á sömu launum að gera sömu hlutina. Ég sagðist bara vilja gera þetta aftur á bak af því þegar ég var yngri þá var ég of eirðarlaus til að geta einbeitt mér að námi. Hún varð eins og þurrkuð skreið í framan og ég rauk út alveg ógeðslega pirruð á kassalaga kerfi sem hugsar ekki út fyrir einingar og áfanga.

Reyndar er ég líka ógeðslega pirruð á þessu samfélagi sem verður að hafa allt og alla í einhverjum kössum í stað þess að sætta sig við að fólk er einstaklingar og allir einstaklingar ættu að hafa rétt á því að vera miðaðir við þá sjálfa. S.b.r. Nýtískuleg menntakerfi úti í hinum stóra eða bara Rudolf fokking Steiner sem er búin að vera around síðan ég veit ekki hvenær, þar sem tekið er tillit til hæfni og getu hvers og eins og það besta gert úr stöðunni. Það væri undursamlegt ef fólk færi að sætta sig við það að:

margir feministar eru með sílikon í brjóstunum, raka sig að neðan og fá það reglulega
margir feminstar eru karlmenn
margir smiðir eru hommar
margir bifvélavirkjar fíla Ceilie Dion
margar hálffertugar húsmæður fíla Primus og Korn... líka sumir kvenkyns gagnkynhneigðir verkfræðingar
margir fótboltastrákar dópa
sumar pabbastelpur úr garðabæ eru lessur sem hlusta á rapp
þingmenn geta verið alkar
tvítugt fólk getur verið þroskaðara en fertugt
sumar konur langar ekki í börn
lyftingakappar geta verið undirgefnir
margir komast áfram í lífinu án þess að hafa stúdentspróf
leigubílstjóri getur haft 160 í IQ og margir verðbréfasalar eru gersamlega ömurlegir í stafsetningu.

Svona er lífið undir þessu dularfulla yfirborði blekkingarheims
meðalmennskunnar og það er eins gott að sætta sig við það því annað er
vonlaus barátta við vind í hausnum ;)

(merkilegt samt hvað sumir nenna að berjast)....



miðvikudagur, apríl 16, 2003

Úff, nú má fólk fara að slappa af!



Var að horfa á RÚV í gær
og birtist mér ekki allt í einu afar listrænt myndband með Björk. Hún var eitthvað að fíla sig í perlukjól, ber að ofan smá og í góðum fílíng að vera listræn. En viti menn. Brjóstin á Björku eru klám og þessvegna var settur svartur kassi yfir þau sem skemmdi gersamlega allt vídeóið.
Svo má alveg sýna eitt brjóst sem barn er að sjúga í Filippo Beríó ólífuolíu auglýsingu. Eins og það komi ólífuolía úr brjóstum!?! Eru brjóst klám þegar söngkona er með þau en ekki þegar það er verið að auglýsa Nivea eða ólífuolíu. Eru brjóst klám í sundi?

...asnar...

og bæ ðe vei, þetta hefur ekkert með femínisma að gera og ekki fara að álykta að femínismi sé fávitaismi. Ekki nema það sé feminismi að fara fram á að brjóst séu ekki klám. Þetta fokkopp og skemmerí á list er forpokun sem minnir á einhverja miðalda Hjálpræðishers eða Babtista fávita stemmingu.

Urrrrrrrrrr..... urrrr... urrrrr.....ég er reið... út að skjóta, út að skjóta....

"Hemmi, koddu með loftbyssuna, við erum að fara upp á RÚV"...

miðvikudagur, apríl 09, 2003

Rosalega var þetta mansals vesen ógeðslegt í sjónvarpinu í gær. Rosalega er heimurinn fokked öpp. Rosalega held ég að svona myndi ekki gerast ef allir væru feministar. Strákar verða að vera feministar... fyrir sjálfa sig, dætur sínar, framtíðina. Þetta tekur eflaust margar kynslóðir, en það er bara að hefjast handa! Skipta um viðhorf. Byrja í heimdranganum. Kvenfyrirlitning er afleiðing einhvers sem ég skil ekki. Fatta ekki hvar eða hvænær þetta byrjaði af því þetta virðist vera allstaðar í heiminum. Birtingarmyndirnar bara misjafnar. Þetta er eins og einhver sjúkdómur. Vírus eða eitthvað þvíumlíkt. Meira að segja sumar konur eru sýktar af þessu og dæma hver aðra hörðum dómum fyrir ekki neitt. Þetta er jafn skrítið og pervertalegt og að vilja fara í stríð. Jafn eitthvað forneskjulegt. Við ættum nú að vera orðin nógu þróuð sem kvikindi að vera ekki að halda okkur við svona rugl. Fólk á bara að bera virðingu fyrir hvort öðru. Kynferði hvors annars og útliti og svona. Ekki alltaf eitthvað karlar eru svona og konur eru svona bullkrapp. Ég er gersamlega með ofnæmi fyrir því. Fari það í heitlogandi RASSGAT...