miðvikudagur, ágúst 27, 2008

Beðið eftir manninum með borinn

Það er frekar undarlegt ástand í búningsklefanum þar sem ég æfi hjá World Class á Seltjarnarnesi. Engin klukka neinstaðar. Klukka er eitthvað sem allir þurfa á að halda þegar verið er að koma sér í gang á morgnanna. Allir búningsklefar eiga að hafa klukku. Konurnar í klefanum gera ekki annað en að spyrja hvor aðra hvað klukkan sé. Nánast í hvert sinn sem ég er þarna er einhver að furða sig á klukkuskortinum. Það er veggur þarna sem var eflaust settur upp fyrir klukku nema hvað að það vantar klukkuna. Þetta er búið að vera svona í marga, marga mánuði.

Síðast í fyrradag spurði ég hvernig staðan væri með klukkuna og stöðvarstýran svaraði mér því að hún væri enn að bíða eftir manninum með borinn.

Bíða eftir manninum með borinn?

Ég sagði henni að ég kynni að bora. Ég ætti meira að segja bor og bauðst til að koma með hann svona upp á djókið. Svo stakk ég upp á því að hún gæti farið og keypt bara svona hanka á ofurlímbandi. Henni þóttu þetta góðar hugmyndir en enn bólar ekkert á klukkunni. Af því "maðurinn með borinn" er ekki mættur.

Þetta þykir mér með endemum skrítið.

Annað sem er skrítið við búningsklefann í WC á Nesi er að þar er spiluð róandi tónlist. Klukkan 09:00 á morgnanna eru spilaðar Gymnopediur Eric Satie og annað sem lætur mann slaka á og hugsa um hvítar snjóflyksur í myrkri, kerti og arineld. Engin klukka og gymnópedíur.
"Eins og í kvennabúri," sagði ein í morgun. "Ætli strákarnir megi hlusta á Rás2?"

Vel að orði komist. Konurnar í kvennabúrinu slaka á og bíða eftir manninum með borinn.

Meira ruglið

Gerðu svo vel. Ein róandi gymnópedía sem hefur samt ekkert að gera með orðið Gym. Síður en svo: