Úff, nú má fólk fara að slappa af!
Var að horfa á RÚV í gær og birtist mér ekki allt í einu afar listrænt myndband með Björk. Hún var eitthvað að fíla sig í perlukjól, ber að ofan smá og í góðum fílíng að vera listræn. En viti menn. Brjóstin á Björku eru klám og þessvegna var settur svartur kassi yfir þau sem skemmdi gersamlega allt vídeóið.
Svo má alveg sýna eitt brjóst sem barn er að sjúga í Filippo Beríó ólífuolíu auglýsingu. Eins og það komi ólífuolía úr brjóstum!?! Eru brjóst klám þegar söngkona er með þau en ekki þegar það er verið að auglýsa Nivea eða ólífuolíu. Eru brjóst klám í sundi?
...asnar...
og bæ ðe vei, þetta hefur ekkert með femínisma að gera og ekki fara að álykta að femínismi sé fávitaismi. Ekki nema það sé feminismi að fara fram á að brjóst séu ekki klám. Þetta fokkopp og skemmerí á list er forpokun sem minnir á einhverja miðalda Hjálpræðishers eða Babtista fávita stemmingu.
Urrrrrrrrrr..... urrrr... urrrrr.....ég er reið... út að skjóta, út að skjóta....
"Hemmi, koddu með loftbyssuna, við erum að fara upp á RÚV"...
miðvikudagur, apríl 16, 2003
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)

|