þriðjudagur, maí 13, 2008

Tengslanet vagínu dentata

Um daginn sat ég á kaffihúsi og heyrði miðaldra, þybbna konu á næsta borði reyna að fá aðra til að koma með sér í svona ferð til að "efla tengslanetið". Ofsalega hvetjandi...."Svo endar ferðin á Bessastöðum, hjá fosseta Ísslands". Það fór um mig hrollur. Fyrr myndi ég drekka vatn úr tjörninni en að fara í ferð sem á að efla "tengslanet kvenna".

Annaðhvort hefur maður það í sér að vilja þekkja fólk eða ekki. Það er eitthvað ekki rétt við það að introvers fari í rútuferð með 50 háværum einstaklingum til að efla tengslanetið við aðila sem hafa sömu kynfæri. Sjáum fyrir okkur karla sem plana að gera innrás í heim umönnunarstarfa til að ná jafnrétti við konur og ráðleggja í því skyni rútuferð sem endar hjá "fossetanum." Sjæse!

Í raun er ég með ofnæmi fyrir öllu sem er með forskeytinu "kvenna" þessa dagana. Ég hafði ekki þetta ofnæmi fyrir svona fimm til sjö árum, en það er eitthvað vagina dentata ævintýri farið af stað í þessu þjóðfélagi sem gengur út á hluti sem ég botna ekki beint í.

Persónulega er ég samt langt frá þessu "konur konum verstar" bulli. Hlustiggi á svoleis því ég veit það er ekki satt, en þetta movement... þetta "Við KONUR" finnst mér hræðilega fráhrindandi af því það gerir ráð fyrir því að allar konur hugsi eins og séu með sömu skoðanir -sem þær hafa ekki.

Um leið og þú ymprar á því að þú sért feministi, þá er eins og það sé sjálfgefið að sá skoðanapakki komi úr HÍ, úr hugarheimi einhverrar Helgu sem ég hef aldrei hitt... og gengur að stórum hluta út á einhverja vitleysu að mínu mati. Einhverjar útúr akademískar ofur analíseringar manneskju sem ætti kannski að byrja að sprauta sig með testesteróni þar sem hana virðist langa svo mikið til að verða karl. Frá mínum bæjardyrum séð virðist það fremur markmiðið en að kvenmenn njóti virðingar (sem þær gera ekki) fyrir það sem þær velja sér í lífinu (og Rannveig Rist verður svaka hetja af því hún er að gera það sem er "karlalegast"...).

Já, það er eins og það sé bara eitthvað dogma viðhengi á orðinu feministi og um leið og skoðanirnar skarast eitthvað á við þetta árans dogma þá verða bara læti. Og vá hvað það voru mikil læti þegar ég, í sakleysi mínu, skráði mig á póstlista feministafélagsins. Ég sem var svo glöð þegar þetta félag var stofnað. Og ég sem varð svo leið þegar forpokaðar og mótsagnarkenndar kreddurnar stigu upp á yfirborðið. Og mikið varð lognið í tölvunni minni þegar ég skráði mig af þessum ömurlega lista.

Þegar ég heyri orðin "tengslanet kvenna" þá virkar það jafn aðlaðandi á mig og að fara í veiðiferð með ýstrubelgjum úr frímúrarareglunni, totta vindla og segja hohoho. Ég bara verð að segja pass. Er ekki eitthvað annað í boði?

Og næst þegar ég heyri orðið "tengslanet" þá ætla ég að hvæsa.