sunnudagur, febrúar 17, 2008

Áðan var leiðinlegt

Um síðustu helgi fór ég í matarboð hjá hinni ástsælu söngkonu Diddú. Þar var samankomið fínt og frambærilegt fólk, eðalsöngvarar og fylgifiskar þeirra ásamt núverandi óperustjóra. Diddú, sem er snilldarkokkur, bauð okkur í margréttaða himneska máltíð og þegar ég settist niður til að bragða á kræsingunum sagði ég, yfirfull af eftirvæntingu:

"Núna er gaman -en áðan var leiðinlegt!".

Þetta var náttúrulega bara grín... og minn elskulegi óperusöngvari áttaði sig strax á því, ég er ekki viss með Stefán...og ég vona að Diddú hafi ekki heyrt þetta en engu að síður sló pínulítið undarlegri þögn á hópinn.