þriðjudagur, nóvember 05, 2002

Var að setja inn nýjan línk. Sussi og Leo frá Danmörku eru með flottustu og jafnframt asnalegustu hljómsveit heims. Ég sá þau einusinni spila. Þá var ég fylleríi á Skagen þar sem þau búa, en það er krummaskuð nyrst á Jótlandi. Þau spiluðu á Skansinum þar sem þau eru með tíu ára samning eða eitthvað í þá áttina. Hún var pínu lítil með risa stór gleraugu og risa stóran bassa. Plokkaði og plokkaði í rosa fíling. Hann var með svona píkuhára skegg, frekar lélegar tennur og snögg krullað hár. Hann spilar á nikku. Bæði voru þau í búningum sem hún hafði hannað en það voru svona grænar lufsur í álfastíl með svörtum doppum. Ég hélt að ég myndi deyja úr ást og hlátri. Sussi og Leo hafa verið par frá því þau voru fimmtán. Þau sáu einusinni geimskip. Hún málar. Tékkaðu á málverkunum hennar á síðunni. Hrein fegurð. Hún er rosa sex fixseruð.Hér eru flottar myndir af þeim sjálfum og hljóðdæmi af spileríinu þeirra en málverkin hennar eru á aðal heimasíðunni þeirra.