þriðjudagur, nóvember 12, 2002

Sísí kom til mín áðan og er til í allt! Það er gaman. Gaman að stelpum sem eru til í allt. Gaman að fólki sem er til í allt. Lengi lifi villingar!!! Best að vera villingur eins lengi og maður getur. Þá er alltaf fjör. Garanterað. Mig langar í mann sem er villingur. Finnst það fallegt. Það er ekkert fallegra en tveir villingar af sitthvoru kyninu. Sjáiði bara: Bonny and Clyde, Sailor og Lula, Krakkarnir í True Romance, Nick Cave og PJ Harvey (reyndar hætt saman og hann er enn á bömmer), Larry og Althea. Ha? Er það ekki? Ha? Hvað finnst þér? Mér finnst það!

Vagga, Millingur