fimmtudagur, nóvember 21, 2002

Mig langar í svona í jólagjöf. Þetta er til að setja ofan á jólatréð og þetta líka.

Yndislegt.

Það væri nú fyndið að skreyta alveg súrt þetta árið. Bara ganga alla leið. Ég skreyti reyndar aldrei en það væri ekki vitlaust að panta svona flamíngó þema frá USA og hlaða á allt inni hjá sér. Spila svo bara Miami metal í jólaútgáfumog Dolly Parton og vera hress í bleikum spandex samfesting með vængi í hárinu. Gera bleikar smákökur, bleikan uppstúf, bleikan rjóma með bleiku tertunni. Bjóða fólki heim. Gefa því bleikt jólasjeik við komuna og benda á að frelsarinn fíli líka bleikt. Hann hafi komið til þín í draumi, í bleiku. Ahhhh....