föstudagur, nóvember 08, 2002

...nú er hún Gnea Gunn á landinu og ég er að fara að fá mér að borða með henni. Það verður gaman að hitta hana. Hitti hana síðast á Malibú þegar hún kom í viku. Okkur fannst ekkert smá súrrealískt að vera saman á Malibú. Í næsta húsi við Adam Sandler...Vot ðe fökk!? Frá Matstofunni til Malibú gæti sameiginleg æfisaga okkar heitið, hahaha... Púkó.

....og já, ég setti tvö ný ljóð inn á ljóðahlekkinn minn í tilefni þess að ég virðist hafa inspírerað Sigga pönk. Takk Siggi. Þetta var fallega sagt...

...meira í nótt. Síðasta fokking næturvaktin í bili...