sunnudagur, mars 30, 2008

Baugs(bött)plögg

Fyndið að sjá Mannlíf á borðinu hjá Sigmundi Erni þegar hann tók viðtal við Jón Baldvin, sem svo skemmtilega vill til að er líka á forsíðu blaðins.
Ætli þetta tímarit hefði verið lagt svona fram þegar Fróði gamli gaf Mannlíf út, en blaðið ekki verið í eigu "Baugs" sem á einmitt Stöð 2 og keypti útgáfufyrirtækið Birting í fyrra (var þaggi)?

Minnti mig svolítið á þegar Kristján Jóhannson teipaði geisladiskinn sinn á ennið á sér í Kastljósviðtali. Fyrr má nú (bött)plögga og áhorfandann bögga.

Og nú er Sigmundur að reyna að plögga nokkrum menningarritum, svona eins og til að breiða aðeins yfir Mannlífsplöggið?

Fyndið.