miðvikudagur, febrúar 06, 2008

Jesú og latibær

Dóttir mín sagði eftirfarandi í dag:

"Mamma, þú elskar Jesú en ég elska ekki Jesú. Ég elska bara Latabæ"

Um daginn ruglaði hún líka Guði og jólasveininum saman. Í raun eru allar þessar fígúrur bara pop-icon í hennar huga og gildir þá einu hvort um er að ræða Batman, Jesú, Guð, íþróttaálfinn eða Línu Langsokk. Allt bara eitthvað hresst lið sem getur gert yfirnáttúrulega hluti. En ekki hvað?