Hunang og annað æðislegt
Ég get ekki annað en hvatt þig til að gera þér ferð í verslunina Klausturvörur sem stendur við Garðastræti 17. Þar er hægt að kaupa allskonar hluti sem eru framleiddir í klaustrum hér og þar í Evrópu en aðallega Frakklandi. Til dæmis sápur, ilmvötn, kex og kökur og margar gerðir af hunangi sem smakkast guðdómlega enda útbúið af nunnum sem hafa helgað leg sitt dómi guðs. Nammi namm. Hlutirnir eru líka í einstaklega sjarmerandi umbúðum og lyktin alveg dýrðleg.
|