Gatnúskeð
Þegar ég rumskaði í morgun og þreifaði á enni ávaxtar lenda minna (sem nú hakkar í sig pistasíuhnetur) fann ég að hún var með hita. Eldmóðurinn sem hefði að öðrum kosti skotið mér á cross-trainerinn með nýniðurhalaða Clash plötu í eyrunum slokknaði. Æ æ ó ó mig auma. EN! Gunný, sem einnig er Seltjarnarneslafði, sagði mér að hún ætlaði líka að byrja í ræktinni á sama stað og því færðist ég í aukana.
Nú getum við Gunný barið hvor aðra með blautum handklæðum og hjálpast að við bekkpressuna.
"ERTU HELVÍTIS AUMINGI KERLING???" garga ég yfir höfðinu á henni, tek slow motion bakfettu og slæ hana svo þvert yfir lærin í valskenndri sveiflu með handklæðisbjúganu.
"NÖÖÖÖJJJJJJJJJJ UUUHHHHRRRRR," rymur hún sem tröll, tekur kraftmikinn mjaðmahnykk og lyftir svo 140 kílóum með þungri stunu.
Oh hvað ég hlakka til á mánudaginn!
|