fimmtudagur, janúar 17, 2008

Ég ætla að drepa Gumma

Rétt í þessu hringdi heimasíminn minn með sínum fagra Klang tón.
Ég lyfti tólinu og bar að eyra.

Gelgjudrengur: "Ég ætla að drepa Gumma"
Maggabest: "Af hverju ætlarðu að drepa Gumma"?
Gelgjudrengur: "Af því hann er vondur maður"
Maggabest: "Þú segir nokkuð, er hann vondur maður"
Gelgjudrengur: "Já"
Maggabest: "Ég held þú hafir slegið inn skakkt númer"
Gelgjudrengur: "Nei. Það held ég ekki"
Maggabest: "Jú, því miður."
Gelgjudrengur: "Býr enginn Gummi þarna"?
Maggabest: "Nei"
Gelgjudrengur: "Ó, afsakið"
Maggabest: "Ekkert mál"

Fin