Blaðamennska
Einhverntíma, ekki eftir allt of langann tíma, langar mig að taka einhvern áhugaverðan kúrs í blaðamennsku í áhugaverðri borg í áhugaverðu landi. Það er undarlegt að hafa starfað við þetta í um 7-8 ár án þess að hafa farið á eitt einasta námskeið. Nóg ætti nú að vera af þeim. Svo greiðir félagið þau niður.
Var eitthvað að spá í hvað margir blaðamenn geta verið uppteknir af því að vera blaðamenn. Soldið fyndið. Það er eins og það verði að ædentitíi. Dr. Blaðamaður eða Séra Blaðamaður Blaðamannsson. Blaðblaðblaðamaðuurrr... (var það ekki eitthvað lag?)
Mér finnst þetta bráðskemmtilegt starf. Mis krefjandi, eftir því hvað mar er að gera, en alltaf jafn spennandi og fjölbreytt. Bráðlega væri ég til í að taka eitthvað rannsóknarblaðamennskustönt. Það er skemmtilegt. Ég gerði það síðast fyrir nokkrum árum, það tók nokkra mánuði og útkoman varð merkileg. Manni vísað úr landi og svona. Þá fílaði ég mig svolítið töff... gaman að vera töff. Gaman að fækka fíflum en líka gaman að skrifa um bíla og meik og bíó og mat og tísku og húðsjúkdóma og tækni og málmiðnaðinn og menntun og myndlist og... og... og....
|