Hveragerði
Ég fór til Hveragerðis í dag með Díönu og Amöndu dóttur hennar sem er sex ára, Eddu minni og Birtu vinkonu Amöndu sem er líka sex ára. Við Díana ræddum ástarmálin fram og aftur og komumst að því að það er eflaust einfaldast að nota orð eins og kúkalabbi, frekja, asni og fáviti í stað orða eins og sjálfhverfa, sjálfmiðun, eigingirni og tillitsleysi.
Orð geta stundum verið svo andskoti leiðinleg þegar fólk er að reyna að tjá hræringar og þessvegna gerir það illt verra að nota svona fullorðinsorð. Nema þegar hræringarnar eru jákvæðar. Þá má segja dásamlegt, unaðslegt, yndislegt og æsandi í staðinn fyrir bara gott eða geðveikt -Þó að gott og geðveikt sé náttúrlega alltaf gott og geðveikt.
|