Mig langar að vera með tippi
Ég fór þetta reglulega tékk á krabbastöðinni áðan. Hjólaði þarna í nýju flottu dúnúlpunni og var að kafna.
Rosalega er leiðinlegt að fara í svona tékk. Það er alveg með því leiðinlegasta sem ég geri. Ömurlega þreytandi stundum að vera kona. Miklu auðveldara örugglega að vera karlkyns. Ekki með þetta stórflókna líffæri þarna sem þarf alltaf að vera að vesenast í heldur bara eitthvað tippi sem hangir svona framan á manni og kemur alltaf til dyranna eins og það er klætt. Engir karlsjúkdóma læknar. Ekkert vesen. Ekkert eitthvað að fela sig neitt og halda einhverju leyndu fyrir manni heldur bara "Já, góðann daginn! Ég er tippi og ég er að slaka á". Eða þegar þau sperra sig... þá er þetta eitthvað "Já, halló, halló... ég er herra tippi!"... hrokafullt og ánægt með sig. Eins og Eminem.
Já halló, Freud... Góðann daginn, ég er kölluð Magga og ég er haldin Penis Envy (reðuröfund).
miðvikudagur, nóvember 05, 2003
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|