Ég fékk gefins miða á Texsas Chainsaw Massacre þegar ég keypti mér Mexíkóskan mat í dag. Er það ekki skrítið? Furðulegar svona markaðssetingar. T.d. Sódóma Reykjavík og pulsur. Svo þetta þarna símaskráin á Esso. Og tantra spóla frá Guðjóni Bergmann og kaffi. Hvað er það?
Sýningin er á miðnætti á morgun...blóð og læti. Man eftir þessari mynd, eða frumgerðinni. Hún kom út þegar ég var krakki. Þetta átti að vera algjört ógeð. Þessi mynd og Cannibal Holocaust. Svo var einhver íslendingur sem lék víst í Texsas Chainsaw. Rosa big díl. Vestur íslendingur held ég. Kannski lék hann eitt líkið. Man það ekki. Ísland. Best í heimi.
Mér fannst alltaf Carrie vera besta mynd í heimi, og The Fog eftir John Carpenter (segi frá þeim síðar í löngum pistli). Hann var nú seigur kallinn, hann John Carpenter. Gerði líka They Live...(1988). Mynd um þegar fólk setti á sig sólgleraugu og varð umsvifalaust undir hælnum á illum öflum utan úr geimi sem sögðu bara OBEY... og fólk varð alveg heilalaust og hlýddi bara. En þetta voru trendí gleraugu. Svona svört... Miami Vice stíllinn.
They influence our decisions without us knowing it. They numb our senses without us feeling it. They control our lives without us realizing it. THEY LIVE.
Kannski var verið að tala um markaðsöflin? Fólkið í auglýsingabransanum um gervallan heim. Þjónar illskeyttra geimvera sem vilja hafa mann undir hælum. Kaupa, kaupa, kaupaaaaaaaaaa.... Carpenter er nefninlega mjög djúpur sko. Það var örugglega einhver dulin merking.
Þetta var aðal leikarinn í myndinn, Roddy Piper
Þetta er svo geimvera
og hérna er vel girtur Roddy Piper með kjéllingu, byssu og sólgleraugu að fara að redda málunum
Roddy Piper með blóðnasir. Alveg brjálaður.
fimmtudagur, nóvember 06, 2003
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|