laugardagur, nóvember 08, 2003

Þetta lag á að syngja með miklum ákafa og það er alveg sama þó að maður sé falskur, það er eiginlega bara betra. Bara muna að gefa sig alla í þetta og halda engu aftur. Þenja lúngun. Sleppah sér!

ANNA Í HLÍÐ

Ég fór að smala kindum hér
kvöld eitt framm í dal
og kominn var ég lengst
inn í bláan fjallasal.
Þá ungri mætti ég blómarós
með augun djúp og blíð
og er ég spyr að nafni
hún ansar: "Anna í Hlíð".
Anna í Hlíð, Anna í Hlíð
með augun blá svo yndisfríð
af ástarþrá ég kvalir líð
Anna í Hlíð, Anna í Hlíð,
þú ert svo ung og fríð,
elsku Anna mín í Hlíð.

Ég örmum vafði Önnu svo
hún andann varla dró.
Mig ástin var að kæfa
og ákaft hjartað sló.
Svo kyssti ég hennar mjúka munn
og augun djúp og blíð
og mælti milli kossa:
"Anna mín í Hlíð".
Anna í Hlíð, Anna í Hlíð,
ég elska mun þig alla tíð
og örmum vefja ár og síð.
Anna í Hlíð, Anna í Hlíð,
nei, engin er eins fríð
og hún Anna mín í Hlíð