Meg Ræan tókst ekki...
...að starta tárakirtlunum. Hún var eitthvað svo ósannfærandi sem alkóhólisti. Annað en Sandra Bullock í 28 day´s -frábær! Sandra leikur oftast "Fuck you" en ekki "Fuck me" skó týpu. Gnea sagði mér að ef maður gengur í flatbotna í UK þá er algengt að XY haldi að maður sé lesbía. Kjánar... fariði sjálfir í pinnahæla! Tölum svo saman.
Gnea lærði kvikmyndagerð en selur flugvélaparta og notar "Fuck you" skó. Margir kallar öfunda hana af þessu djobbi. Það er frekar fyndið. Kannski er það þessvegna sem þeir hoppa í þessa klassísku lesbíuvörn? Maður veit aldrei. Maður veit ekki neitt.
Já...Meg Ræan finnst mér frekar væmin eitthvað. Allavega akkúrat núna.
Goldie Hawn er sætari, eða var... þegar hún var ung þá var hún æðisleg, en hún er frekar steruð og strekkt þessa dagana. Samt sæt....mynd 39 er ógeðslega flott. Hún virðist hafa farið seint á kynbombu og sílikon trippið.
Kundun kom á eftir Meg og mér tókst að væla aðeins yfir henni þó að þetta sé ekkert æðisleg mynd. Það hafði kannski að gera með þetta "kerfið kúgar andann" dæmi. Erkitýpískt ástand sem hefur varað frá dögum smiðsins fræga.. Þetta er alltaf sama bullið, aftur og aftur. Kannski bara eitthvað lögmál organismans?
Jæja, nóg rafröfl í bili. Rafröfla meira á morgun. Það er gaman að rafröfla. Ég er komin út í rafröfls öfga. Ragnar rafröflar. Ragga borðar rófur. Ragnar segir ra ra ra. Ragga segir Rarik. Ragnar segir rafveita. Ra ra ra segir Ragga. Rí***u mér í ra** segir Ragnar. Rass rass rass segir Ragga. Magga roðnar. Roðn roðn roðn hugsar Magga...
og já... ég er búin að setja inn tvo asna hlekki!!! gaman gaman
laugardagur, nóvember 09, 2002
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|