Rocky horror
Rocky Horror Pictures Show sá ég þegar ég var á fyrstu árum kynþroskans. Verð að segja að þessi mynd hafði gersamlega kyngimögnuð áhrif á undirritaða. Frank'n Further upplifði ég sem kyntröll og eftir það hefur gender-bending þótt sjálfsagt mál í mínum bókum þó ég laðist ekki þannig lagað að karlmönnum í sokkaböndum.
Ég fór margoft að sjá þessa mynd. Meðal annars í sérstöku þema bíói í London þar sem fólk mætti í þar til gerðum búningum í salinn og henti hrísgrjónum á hvíta tjaldið. Allir sungu með fullum hálsi. Þvílíkir töfrar! Öll börn ættu að fá Rocky Horror í fermingargjöf.
|