Tómatsósublogg
Tunglið er fullt. Ég er búin að pakka gjöfunum. Ég er með Búdda og Litla Jesú í hjartanu og Júdas og Devadatta eru úti að moka flórinn.
Er að hugsa um að stofna trúfélag gegn tómatsósu. Það er til fólk sem kann að meta tómatsósu og svo er til fólk sem finnst tómatsósa vond og telur hana, en ekki testósterón, rótina að vandamálum heimsins.
Eða nei annars. Ég ætla að stofna félag sem fagnar fjölbreytni. Sem segir já en ekki nei. Það er svo last síson að vera anti þetta eða hitt af því það er svo neikvætt að vera gegntómatsósaður af anti öllum stundum. Því segi ég í nótt, á þessari fallegu tunglbjörtu nótt -
Komi þeir, sem koma vilja,
veri þeir, sem vera vilja,
fari þeir, sem fara vilja,
mér og mínum að meinalausu.
|