Snobb er tilgangslaust því öll störf eru þjónustustörf
Auðvitað eru öll störf þjónustustörf. Það er í raun sama hvað það er sem við fáumst við með starfi okkar, allir eru á einn eða annan hátt að reyna að verða öðrum til gagns eða gamans.
Sum störf flokkast sérstaklega undir þjónustustörf og þá er átt við það þegar fólk sinnir öðru fólki á augljósan máta. Til dæmis með því að færa kaffi, skipta á rúmum eða finna vörur í hillu.
En af hverju ekki að bæta þessu heiti við fleiri störf?
Nú sit ég til dæmis hér og skrifa þennan pistil svo að þú getir hvílt kollinn þinn frá öðrum hugsunum. Þannig er ég pistlahöfundur í þjónustustarfi.
Skrítlurnar hér að neðan voru teiknaðar af fólki sem fékk listræna hæfileika í vöggugjöf og notar þá til að skemmta þér og mér. Alþingismenn og rafvirkjar skoða líka skrítlurnar og flissa andartak en svo fara þeir að þjónusta okkur á sinn hátt. Þetta segir sig sjálft. Það er sama hvert við lítum. Öll störf eru þjónustustörf.
Hvers vegna þá að snobba meira fyrir einu starfi en öðru? Hvers vegna er "fínna" að vinna á lögfræðistofu en hjúkrunarheimili fyrir aldraða? Við getum ekki án hvors annars verið. Hvað myndum við gera ef allir rakarar heimsins hentu skærunum? Við litum út eins og hænurassar í vindi. Tannlæknar leggja niður störf. Við myndum hætta að brosa. Sorphirðufólk, halda sig heima. Það myndi allt fyllast af rusli.
Og því er drambið falli næst. Hugsanlega endum við á hjúkrunarheimilum þar sem náð okkar og miskunn er í höndum þeirra starfsmanna sem síst er snobbað fyrir og því er um að gera að láta af þeim ljóta sið sem fyrst því öll störf, já... öll störf eru þjónustustörf.
(þessi pistill var í fréttó síðasta sunnudag)
|