miðvikudagur, júní 06, 2007

Svona lít ég út

Jóna Ingibjörg er kona mér að skapi. Hún er skemmtilegur bloggari og hefur gert mikið fyrir stemninguna hér á skeri. Á blogginu sínu vísaði hún í mitt og sagði að ég væri kát og hress og út frá því komu athugasemdir á hennar síðu um bloggara sem ekki sýna fés sitt eða gefa fullt nafn. Því ákvað ég að sýna mitt fés og hér er það.

Myndin er tekin 18 febrúar s.l. í fertugsafmæli á Kaffi Reykjavík. Með mér á þessari mynd er hin dásamlega Edda Ágústa dóttir mín. Heklupeysuna fékk ég fyrir svona 5 árum sirka í Rauða Kross búðinni á Laugavegi. Hárið aflitaði Ragnheiður fyrst síðasta september og hef ég haldið því tempói síðan. Með litnum reyni ég að líkjast Andy Warhol, en hann er í miklu uppáhaldi hjá mér, hefur verið lengi og eru mýmargar ástæður fyrir því.

Munu nú hugsanlega líða fimm ár þar til ég birti aftur mynd af sjálfri mér á þessum veflók, enda eru það ekki fötin sem menn vilja heldur það sem þau hylja. Heilinn undir hattinum. Landið á bak við bláu augun.

Ást og friður

Hugrún Warhol