mánudagur, júní 04, 2007

Félagið

Nú er það komið í tísku að kalla fyrirtæki "Félagið". Það er líka komið í tísku að kaupa einbýlishús á 100 mio, rífa þau og byggja ný. Range Rover bílar eru líka í tísku. Sjúklega plebbalegir finnst mér. Fannst það ekki fyrir hálfu ári, enda eru þetta bráðfínir bílar, en þegar annarhver "wannabe" er kominn á slíkan SUV þá dettur svolítið úmpfið úr þessu. Ef ég myndi byrja að deita mann núna og hann kæmi til mín á Range Rover þá væri það turnoff.