Stuð milli stríða -Það sem miðbærinn þarfnast er meik-óver
Fyrir um það bil þremur árum gekk ég niður Laugaveginn með Svía sem var staddur hérlendis í fyrsta sinn. "Det här är en ful gata," sagði hann og bætti við að borgaryfirvöld ættu að sjá sóma sinn í að rífa kofa, fjarlægja þessa flögnuðu, grænu stauta, helluleggja upp á nýtt ... fjölga bekkjum og ruslafötum.
Ég skildi ekkert um hvað gesturinn var að tala. Fannst eins og það væri nýbúið að taka allt í gegn, en í raun voru þá mörg ár síðan "flikkað" var upp á götumyndina og glöggt var hans auga.
Ég nuddaði stírurnar og sjá! Það er ekki það hús á Laugaveginum sem ekki er búið að krota á og þar bætist grátt á svart því í fæstum tilvikum eru þetta fögur hús. Renglulegir bárujárnskofar á stangli innan um byggingar sem búið er að breyta og "bæta" 25 sinnum á ári eftir því hvaða rekstur fer fram hverju sinni. Það er í raun bara eitt og eitt hús sem kalla má fallegt við þessa götu og fæst þeirra eru klædd bárujárni. Samt er eins og það sé eitthvað "nýju fötin keisarans" heilkenni í gangi. Margir tala eins og þetta sé heilög gata sem beri að vernda. Að það sé synd að rífa gamalt og byggja nýtt.
Fussum svei segi ég og meinaða. Fussum svei!
Laugavegurinn, eins og hann er í dag, gæti eins verið hliðargata í einhverjum útnára í gömlu Sovétríkjunum og ef hann væri kona, þá væri hann þessi týpa sem klæðir sig og farðar hvorki í samræmi við aldur né vöxt. Svona "sextug Britney Spears" og því þarf slatti að koma til svo þessi aðalgata verði borgarbúum til sóma.
Kannski væri hægt að ráða úrvalslið arkitekta, innlendra sem erlendra (gestsaugað) og Queer eye for the straight guy liðið til að gefa þessari götu það "make over" sem hún á skilið. Við viljum jú vera fín fyrir útlendingana og er þá ekki tímabært að snurfusa til áður en gestirnir ganga í bæinn? Kannski var Pravda-bruninn bara táknrænn eins og krúnurakstur hinnar útbrunnu Britney? ... Nýtt lúkk takk! Hingað og ekki lengra!
|