sunnudagskvöld
Ég hékk í rúminu til kl 15 í dag og þótti það ansi skemmtilegt. Það er gaman að hanga á náttfötum og gera ekki neitt, neitt, neitt... sofa svo mikið að allar hrukkur gufa upp, vakna svo vankaður með vökvaskort, þamba stórt vatnsglas, gera kaffi og fara í gang. Lesa, lummast... tala í símann... hangsa.
Í kvöld fór ég svo út að borða með Orra og Heiðrúnu. Við ætluðum fyrst á Indian Mango, en þar var lokað... mjög skrítið... svo fórum við á Lauga-Ás (af því það er svo fyndið) en þegar við komum þar inn þá tók við okkur einhver dularfull stemmning sem sendi okkur út aftur og á Pottinn og pönnuna (sem okkur fannst rosa 80's og fyndið líka). Þar fengu þau mat sem þau voru voða glöð með, en ég sem borgaði rúman 2000 kall fyrir burrito, var ekki eins ljómandi sátt. Samt var þetta allt í lagi... en hefði mátt vera betra miðað við að þetta er dýrasta burrito sem ég hef borðað.
Í kvöld skrapp ég á brenzluna með Möggu V og þar hitti ég svo Díönu með kærastanum Magga Rútu sem nú hefur fengið nýtt viðurnefni og í dag má kalla hann Magga Blúndu. Held að það sé Mörður sem stendur fyrir þessu skemmtilega nafni. Enda hálf undarlegt að kalla mann "rútu" þegar allir vita að hann heklar litla dúka í tómstundum. Þannig á blúnda öllu betur við.
|