fimmtudagur, september 22, 2005

Á hverfanda hveli

Ég heyrði viðtal við búttaða hommann, Aron Pálma, sem situr í stofufangelsi í Texas. Strákræfillinn. Nú er rok dauðans á leiðinni til hans og hann má ekki flýja fyrr en "búið er að lýsa yfir neyðarástandi". Eins og þetta rok sé ekki nóg neyðarástand.

Hann segir að allir nágrannarnir séu farnir og nú húkir hann einn með þetta yfirvofandi. Húkir í húsi og bíður eftir stormi.

Aumingja Aron.