föstudagur, júlí 15, 2005

17.000 krónur til Simba

Fór í klippingu í gær til Jóa og félaga. Borgaði 14500 krónur fyrir klippingu, aflitunarstrípur og skol + 2600 fyrir sjampó og næringu... Alls 17.000 kr.

Fyrir þessa upphæð finnst mér ég nú vera eins og búttuð flíspeysufóstra utan af landi sem er að reyna að vera smart og ungleg. Helvítis, djöfulsins, andskotans.

Sem betur fer vex hár aftur. Og ég fer aldrei aftur á þessa okurbúllu!