Best að blogga um líf sitt
Fortíð dagsins í dag:
Vaknaði kl 7.20 og skrifaði þrjár síður í morgunbókina.
Fór í föt.
Fór í vinnuna.
Baðaði gamalmenni.
Hékk og gerði lítið.
Gaf gamalmennum kökur.
Trippaði á Vinabandinu og fannst Anna í Hlíð flottasta lagið.
Hló að einni sem heldur að hún sé á hóteli í New York en ekki elliheimili.
Hékk og gerði lítið.
Fór heim.
Fór í sturtu.
Talaði við Genny á msn.
Talaði við Hólmu á msn.
Gerði kaffi og át kex.
Magga hringdi frá London og sagði mér frá Ljósheimum 9 árið 1977.
Stelpurnar úr Orðlaus komu og við völdum myndir í grein sem ég er að skrifa um New York.
Raggi hringdi.
Mamma hringdi.
Stelpurnar fóru.
Ég skrifa meira.
Framtíðin:
Borða eitthvað. Fer og næ í þvott á snúrunni. Skipti um föt og snurfussa mig eitthvað. Fer og hitti pennavin minn hann Ali á eftir. Hann býr til börn. Er glasafrjóvgari frá Oxford sem býr í London. Fer svo örugglega á eitthvað flandur með honum. Hef aldrei séð hann áður. Hann er fáránlega gáfaður og óheppinn með veður.
Morgundagurinn:
Ætla að láta mála mig einhverstaðar í þessum mýgrút af ókeypis meiköpp tilboðum sem eru úti um allt. Ætla að verða glam púss. Glam slam jólaköttur. Fer svo með Hólmu um kvöldið að hangsa einhversstaðar. Hún er menningarfulltrúi á menningarstofnun í borginni.
föstudagur, nóvember 07, 2003
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|