sunnudagur, nóvember 24, 2002

Jæja, þá er teljarinn farinn í klessu. Voðalega er tæknin alltaf að stríða manni.

Ég fór á Beyglur áðan og hló ansi mikið. Þetta voru fyndnar stelpur. Fyndið að vera ekki að rembast of mikið í þessu leg veseni, þeim tókst að komast af í femínismanum. Femínismi er vandasamur ismi. Það verður að fara varlega með hann til að skilaboðin komst áfram án þess að virka eins og einhver geðveiki sem stafar af kynlífsskorti. Eins og brothætt egg... Skil ekki hvað hann virðist alltaf snúast miklu meira um stripp og píkuhár en launamismun. Ef öll sú orka sem fer í að skrækja um súlustaðina færi í að rétta launamismuninn þá væri löngu búið að redda þessu. Það eru svo margir sem skilja ekki kjarnann frá hisminu, kjaftinn frá hyskinu... ég vil nýtt fólk á þing.

Eftir leikritið skrapp ég á kaffihús með fjórum frænkum mínum, tveimur systrum mömmu og tveim dætrum annarar þeirra. Önnur dóttirin er að deita þriðja hreina sveininn. Hún er 23 ára og sá sem hún er með núna var hreinn sveinn þegar þau byrjuðu saman! Hann er tuttuguog eins... og þetta er ÞRIÐJI hreini gaurinn sem hún er með. Það finnst mér alveg gersamlega magnað.
Það er ekki eins og hann eða hún séu eitthvað sérstaklega ljótt fólk... nei, nei. Bara venjulegt... en hún er með eitthvað fetish blessunin. Segir að þeir séu svo miklu betri aðdáendur en hinir sem eru reyndari. Ég hélt að þetta væri eitthvað svona kalla thing að vilja hreinleikann... lën ífið er alltaf að koma manni á óvart, og eðlið... blessað eðlið.

Það er samt eitt vandamál með herra Hrein. Frænka býr heima hjá afa og Hreinn er alltaf þar, en málið er að hann er eitthvað hálf hræddur við gamla kallinn og talar ekkert við hann og það pirrar afa. Þessvegna er afi byrjaður að stríða honum með því að kynna sig alltaf annað slagið fyrir honum eins og hann hafi aldrei hitt hann áður, eins og það séu svo margir gaurar sem koma í heimsókn til frænku. "Blessaður vinur, Sigurgeir heiti ég, hvað heitir þú?" ...Hehehe... áfram afi!

Maður er aldrei lengi í Paradís í einu og ég er kominn aftur á death row. Sama rullann aftur og aftur og aftur... nú er það bara þessi nótt og svo er þetta búið í bili. Haleljúah... rosalega ætla ég að njóta þess að vera í fríi.... áfram frí!